Verður Kepa aftur skúrkurinn? Valur Páll Eiríksson skrifar 22. mars 2026 12:30 Kepa Arrizabalaga hefur tvisvar verið í markinu í úrslitaleik deildabikarsins. Í bæði skiptin hefur hann verið skúrkurinn. Getty „Ég hefði tekið hann út af með handafli,“ sagði John Terry, fyrrverandi fyrirliði Chelsea, í setti Sky Sports eftir tap Chelsea fyrir Manchester City í úrslitum deildabikarsins árið 2019. Þar er rætt um Kepa Arrizabalaga, þáverandi markvörð Chelsea, sem var skúrkurinn í þeim leik . Hann mætir City aftur í dag í úrslitaleik keppninnar.
Kepa er varamarkvörður fyrir David Raya hjá Arsenal en hefur spilað leiki liðsins í keppninni hingað til og mun standa milli stanganna í dag. Kepa á ekkert sérlega góðar minningar úr úrslitaleikjum af Wembley. Hann hefur tvívegis verið í markinu í úrslitaleik keppninnar og verið skúrkurinn í bæði skiptin. Frægt er atvikið þegar hann var í markinu hjá Chelsea þegar liðið mætti Manchester City árið 2019. Maurizio Sarri stýrði þá Chelsea og hugði að breytingu þegar stefndi í vítaspyrnukeppni. Hann tók blaðsíðu úr bók Louis van Gaal sem skipti Tim Krul inn í mark Hollands á HM 2014 rétt fyrir vítaspyrnukeppni og vann leikinn fyrir Hollendinga. Sarri ætlaði að skipta Willy Caballero inn fyrir Kepa þegar framlenging úrslitaleiksins var að klárast en Kepa einfaldlega neitaði að fara út af. Úr varð mikið havarí sem lauk með því að Kepa hélt sætinu í markinu en Sarri hótaði að ganga inn til búningsherbergja rétt fyrir vítaspyrnukeppni vegna bræði sinnar í garð spænska markvarðarins. Kepa tókst að verja eitt víti en Chelsea tapaði vítaspyrnukeppninni 4-3. Kepa hlaut því silfur og var skúrkurinn eftir ævintýraleg vandræðalegheit. Aftur skúrkurinn þremur árum síðar Kepa fékk annað tækifæri til að vinna sömu keppni á Wembley árið 2022. Í þetta skipti var Thomas Tuchel stjóri Chelsea og hann fór sömu leið og Sarri hafði gert þremur árum fyrr. Kepa var í það skipti í hlutverki Willy Caballero. Hann sat allan leikinn á bekknum en Tuchel skipti honum inn á fyrir Edouard Mendy, sem hafði varið mark Chelsea allan leikinn, á 120. mínútu Mendy var ósáttur en hlýddi þó fyrirmælunum, annað en Kepa hafði gert 2019, og fór út af fyrir spænska markvörðinn. Við tók ein lengsta vítaspyrnukeppni í sögu deildabikarsins. Allir ellefu leikmenn Liverpool skoruðu framhjá Kepa og allir tíu útileikmenn Chelsea skoruðu einnig. Þá kom að Kepa að taka víti. Eftir að hafa horft á eftir ellefu skotum Liverpool-manna fara í netið hjá sér skaut Kepa í slá. Liverpool var meistari og aftur fékk Kepa silfur sem skúrkurinn. Spænski markvörðurinn á því ekki góðar minningar úr úrslitaleikjum keppninnar en spurningin er hvort allt sé þegar þrennt er hjá Kepa og honum takist loks að vinna keppnina, í þetta sinn í treyju Arsenal. Úrslitaleikur Arsenal og Manchester City hefst klukkan 16:30 og verður sýndur beint á Sýn Sport Viaplay. Bein útsending og upphitun hefst klukkan 16:00.
Enski boltinn Arsenal FC Chelsea FC Manchester City Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira