Virkniseðill - er það eitthvað fyrir Íslendinga? 26. mars 2026 14:33 Félagsleg aftenging og einmanaleiki eru útbreidd í öllum heimshlutum og meðal allra aldurshópa. Afleiðingarnar geta verið alvarlegar og snerta bæði líkamlega og andlega heilsu, vellíðan, menntun, efnahag og samfélagið í heild. Hér er því um mikilvægt lýðheilsumál að ræða og ljóst að þörf er á fleiri úrræðum sem efla félagsleg tengsl og auka tilfinningu fólks fyrir tilgangi og merkingu í lífinu. Í dag er alþjóðlegur dagur „social prescribing“ sem er félagslega ávísun og við kjósum að kalla virkniseðil og því tilvalið að staldra aðeins við og skoða hvernig slíkt úrræði gæti nýst til heilsueflingar. Virkniseðill (e. social prescription) hefur á síðustu árum orðið sífellt sýnilegri í stefnumótun og framkvæmd heilbrigðisþjónustu víða um heim. Hugtakið vísar til þess þegar einstaklingur með heilsutengdar félagslegar þarfir er tengdur við samfélagsleg úrræði utan hefðbundins heilbrigðiskerfis til að mæta þörfum sem hafa áhrif á heilsu og vellíðan. Slík úrræði geta verið til dæmis gönguhópar, sjálfboðastarf, garðyrkja, kórastarf, listasmiðjur eða önnur menningar- og samfélagsþátttaka. Kjarninn í þessari nálgun er sá að einstaklingur sem leitar sér aðstoðar, hvort sem það er innan heilbrigðiskerfisins eða utan þess eins og hjá kennara, þjálfara, félagsráðgjafa eða álíka fær tilvísun áfram til sérstaks tengiliðar. Sá tengiliður vinnur svo með einstaklingnum að áætlun sem byggir á áhuga hans, þörfum og markmiðum með það að markmiði að efla heilsu og vellíðan og styrkja tengsl við samfélagið. Í stað þess að spyrja: „Hvað er að?” er spurt: „Hvað skiptir þig máli?” Sem dæmi má nefna að rannsóknir síðustu ára á áhrifum lista og menningar á heilsu hafa ýtt undir þá sýn að þar kunni að leynast vannýtt heilsueflandi auðlind. Þátttaka í listum og menningu hefur meðal annars verið tengd bættri geðheilsu, sterkari félagslegum tengslum og aukinni upplifun af merkingarbæru lífi. Í mörgum rannsóknum er bent á að listir geti gegnt hlutverki í forvörnum, heilsueflingu og sem stuðningur við aðrar meðferðir. Það er þó mikilvægt að nefna að listir eru engin töfralausn og eiga ekki að koma í stað hefðbundinnar meðferðar þar sem hennar er þörf. Gildi þeirra felst frekar í því að þær geta verið mikilvæg viðbót: stutt við heilsu, aukið félagslega virkni, hjálpað fólki að efla sjálfsmynd og bætt lífsgæði. Árið 2019 varð ávísun virkniseðla hluti af opinbera heilbrigðiskerfinu í Bretlandi og víða um heim eru virkniseðlar í auknum mæli skilgreindir sem hluti af heildrænni lýðheilsustefnu og forvörnum. Í Bretlandi starfa tengiliðir þjónustunnar (e. Link workers) oftast í tengslum við heilsugæsluna, þar sem þeir kortleggja félagslega stöðu og þarfir fólks og tengja það svo við viðeigandi úrræði; svo sem listir, menningu, sjálfboðastarf, garðyrkju, gufuböð, hreyfingu o.s.frv. Fyrirkomulagið er aðeins mismunandi milli landa, en hlutverk tengiliðarins er að vera brú á milli heilbrigiðsþjónustu og samfélagsúrræða og vinna með einstaklingum að því að búa til virkniseðil eftir þörfum og áhuga viðkomandi. Á Íslandi höfum við alla burði til að hugsa meira í þessum anda. Hér er öflugt menningarlíf, virk félagasamtök, fjölmargir kórar, listasmiðjur, bókasöfn og margvísleg samfélagsverkefni sem gætu orðið hluti af víðari heilsueflandi sýn. Virkniseðlar eru ekki töfralausn, en þeir gætu orðið mikilvægu hluti af heildrænni nálgun að bættri lýðheilsu og aukinni vellíðan á Íslandi. Undirritaðar hvetja þau sem taka við stjórn eftir næstu sveitastjórnarkosningar til að skoða þennan möguleika af alvöru. Virkniseðlar gætu verið raunhæf leið til að efla vellíðan og lýðheilsu. Svala er heimilislæknir og doktorsnemi í lýðheilsuvísindum og Silja er lyfjafræðingur og meistaranemi í listum og velferð við LHÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Menning Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar