Fjárhagslegt sjálfstæði Seltjarnarness í hættu Kristinn Ólafsson skrifar 30. mars 2026 07:00 Tæplega þrír milljarðar hafa tapast á áratug og skuldir fjórfaldast. Nú er kominn tími á breytingar. Seltjarnarnarnes er að mínu mati eitt besta sveitarfélag landsins til að búa í. Hér er sterkt og fjölskylduvænt sveitarfélag umkringt fallegri náttúru. Ég er sjálfur fæddur og uppalinn á Nesinu, hér ól ég upp mín börn og fylgist nú með barnabörnunum fara í gegnum skólana á Nesinu. Ég veit að það er metnaður Seltirninga að veita framúrskarandi þjónustu, það höfum við alltaf gert. En á síðustu árum höfum við því miður fundið fyrir því að dregið hefur verið úr þjónustu, byggingar og leikvellir liggja undir skemmdum og ákveðið úrræðaleysi hefur einkennt bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar. Ábyrgur rekstur er undirstaða þess að við getum veitt góða þjónustu en því miður hefur töluvert vantað upp á þegar kemur að faglegum rekstri bæjarins. Tölur tala - Þriggja milljarða tap Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs Seltjarnarnesbæjar hefur verið neikvæð níu sinnum á síðustu tíu árum. Uppsafnað tap frá 2015 nemur nú rúmlega þremur milljörðum króna. Á þessu kjörtímabili hefur fjármálastjórnun bæjarins versnað með fordæmalausu tapi á rekstri bæjarins og uppsafnaður halli vex hratt. Upsöfnuð rekstrарniðurstaða Seltjarnarnesbæjar 2015–2024. Heimild: Ársreikningar Seltjarnarnesbæjar. Sveitarstjórnarlög gera skýra kröfu um að rekstur sveitarfélaga sé í jafnvægi á hverju þriggja ára tímabili. Seltjarnarnesbær hefur ekki uppfyllt þá kröfu í áratug. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur þegar gert athugasemdir og endurskoðendur bæjarins hafa ítrekаð bent á nauðsyn markvissrar áætlunar um viðsnúning. Viðbrögðin hafa verið ófullnægjandi og fjárhagslegt sjálfstæði sveitarfélagsins því í hættu. Hvernig komumst við hingað? Lengi vel byggði Seltjarnarnes á viðskiptamódeli sem gekk út á lága skatta og sölu eigna til að fjármagna uppbyggingu innviða. Þegar byggja þurfti skóla eða ráðast í stórar framkvæmdir gat bærinn selt lóðir til að brúa bilið. Þetta módel hætti hins vegar að virka af krafti eftir árið 2007 þegar við seldum síðast lóð til uppbyggingar. Nú er takmarkað land eftir og svigrúmið til athafna hefur minnkаð verulega. Á sama tíma hefur útsvarsprósentu bæjarins verið haldið undir hámarki þrátt fyrir að tekjur hafa ekki dugað fyrir útgjöldum og þeirri þjónustu sem íbúar kalla eftir. Til að bregðast við þessu hafa ýmis gjöld á barnafólk og íbúa verið hækkuð, viðhaldi frestað og dregið hefur verið úr þjónustu. Nú er hins vegar viðhaldsskuldin farin að bíta harkalega eins og sjá má í kostnaðarsömum mygluframkvæmdum í Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla, í fokheldu félagsheimili, rakaskemmdum í félagsmiðstöðinni og bæjarskrifstofunni sem nú hefur verið auglýst til sölu. Einnig er kominn tími á viðhald á tónlistarskóla, íþróttamiðstöð og sundlaug bæjarins. Ástandið á götum, gangstéttum, veitukerfi og Eiðistorgi er svo efni í aðra grein. Afleiðingin af því að reka bæinn á yfirdrætti er skýr, heildarskuldir bæjarins hafa fjórfaldast á tíu árum, úr 1,7 milljörðum árið 2015 í tæpa 8 milljarða. Afborganir og vaxtakostnaður hafa safnast upp sem dregur enn meira úr svigrúmi til að veita þá þjónustu sem íbúar eru vanir eða til að sinna nauðsynlegu viðhaldi. Kominn tími á breytingar Ég skrifa þessa grein ekki til að gagnrýna eða rífast um fortíðina. Ég skrifa hana vegna þess að ég tel að Seltjarnarnesbær eigi skilið bæjarstórn sem hefur bæði vilja og getu til að snúa rekstrinum við. Við þurfum ekki fleiri afsakanir eða eftiráskýringar, við þurfum að ráðast í raunverulegar aðgerðir. Við þurfum að horfast í augu við það að tekjur þurfa að standa undir gjöldum. Við þurfum að forgangsraða verkefnum og hagræða í rekstri. Tekjuöflun þarf að endurspegla raunverulegan kostnað við rekstur bæjarins og skapa svigrúm til að sinna reglulegu viðhaldi. Við þurfum að nýta þau tækifæri sem felast í skipulagi og uppbyggingu á miðbæjarsvæðinu, bæði til að styrkja samfélagið og skapa tekjur. Og við þurfum að koma fagmennsku og aðhaldi í fjármálastjórnun bæjarins þannig að áætlanir séu raunhæfar og þeim fylgt eftir. Þetta er ekki spurning um hugmyndafræði. Þetta er spurning um hæfni og ábyrgð. Íbúar á Seltjarnarnesi eiga skilið bæjarstjórn sem rekur bæinn af skynsemi, horfir fram á veginn og tekur erfiðar ákvarðanir þegar þeirra er þörf. Markmið okkar er skýrt: Við ætlum að tryggja að Seltjarnarnes geti áfram boðið upp á framúrskarandi skóla, leikskóla og íþróttaaðstöðu, en það krefst þess að við rekum bæinn af meiri festu og framsýni en gert hefur verið undanfarin ár. Við í Samfylkingu, Viðreisn og óháðum bjóðum fram fagþekkingu og raunverulegan vilja til breytinga. Við erum tilbúin að taka við og standa vörð um fjárhagslegt sjálfstæði Seltjarnarnesbæjar. Höfundur er oddviti Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Seltjarnarnes Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón B. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar