Hleypa rússnesku olíuskipi óáreittu til Kúbu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 29. mars 2026 23:24 Tvö varðskip eru á svipuðum slóðum en bíða átekta. Getty Bandaríska landhelgisgæslan hyggst ekki hindra för rússnesks olíuflutningaskips til Kúbu með langþráðar eldsneytisbirgðir þrátt fyrir nokkurra mánaða óformlegt hafnbann á olíuflutninga til landsins.
Þessu greinir New York Times frá og hefur eftir ónafngreindum embættismanni sem sagður er þekkja til málsins. Olíuskipið flytur um 730.000 tunnur af hráolíu og er í eigu rússneska ríkisins. Það var, af MarineTraffic að dæma, skammt undan ströndum Kúbu og áætlað er að það nái áfangastað síðar í kvöld. Nái skipið áfangastað sínum óáreitt yrði það mikil búbót fyrir kúbversk stjórnvöld og hægja á yfirvofandi efnahagshruni. Að minnsta kosti myndi það fresta því um fáeinar vikur að eldsneytisbirgðir landsins klárist. Óljóst er hvað veldur þessum sinnaskiptum bandarískra stjórnvalda. Samkvæmt umfjöllun New York Times eru tvö varðskip landhelgisgæslunnar í nágrenni flutningaskipsins en þeim voru ekki gefin fyrirmæli um að hafa afskipti af því. Trump hefur frá í janúar haldið úti því sem jafngilti hafnbanni á Kúbu, hótað þjóðum sem fluttu eldsneyti að ströndum hennar öllu illu og í einu tilviki fylgt olíuflutningaskipi sem stefndi þangað burt. Hvíta húsið hefur ekki svarað fyrirspurnum blaðamanna Times og ekki er heldur ljóst hvort olíuflutningar til Kúbu verði leyfðir héðan í frá. Með þessu sýnir Trump Kúbverjum að þrátt fyrir þrálátar hótanir geta Kúbverjar enn þá stólað á gömlu bandamenn sína Rússa.
Bandaríkin Kúba Bensín og olía Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira