Húðflúrum þjálfarans fjölgar eftir sögulegan sigur Íslendings á NM Aron Guðmundsson skrifar 2. apríl 2026 10:31 Ronald og Davíð mynda gott teymi. Sigur Ronalds á Norðurlandameistaramótinu varð til þess að Davíð þurfti að fá sér nýtt húðflúr Vísir/Samsett Hinn sautján ára gamli Ronald Bjarki Mánason varð á dögunum fyrsti íslenski karlinn til þess að standa uppi sem Norðurlandameistari í hnefaleikum. Með sigrinum þurfti þjálfari hans að efna loforð sem verður sýnilegt til æviloka.
Ronald vann yfirburðasigur gegn heimamanninum Vaino Nore í Finnlandi og tryggði sér sögulegan Norðurlandameistaratitil og eru hann og Erika Nótt nú einu Íslendingarnir til þess að hafa orðið Norðurlandameistarar í hnefaleikum. „Mér leið mjög vel fyrir bardagann. Var með gott sjálfstraust. Ég var búinn að æfa úti í útlöndum fyrir þetta og það hafði allt gengið mjög vel,“ segir Ronald í viðtali við íþróttadeild Sýnar. „Maður er búinn að vera æfa með gæjum sem eru númer eitt í sínum löndum. Eru betri en gæinn sem þú ert að fara keppa við. Það hjálpar fyrir hausinn. Að vita að þú átt að vinna þetta.“ Allt samkvæmt áætlun Enn eitt alþjóðlega mótið sem Ronald ber sigur úr býtum á en báðir Norðurlandameistarar Íslands til þessa hafa æft undir stjórn hnefaleikaþjálfarans Davíðs Rúnars Bjarnasonar. „Það kom mér ekkert á óvart þarna,“ segir Davíð um frammistöðu Ronalds á mótinu. „Við erum búnir að gera þetta daginn út og inn. Allan tímann að gera sömu hlutina, endurtekningar eftir endurtekningar eftir endurtekningar. Að sjá það verða að veruleika í hringnum er náttúrulega bara draumur hvers þjálfara.“ Davíð er ekki sá rólegasti þegar að keppendur hans eru í hringnum að berjast. Hann lifir sig mikið inn í það sem gerist þar. „Ég hlæ alltaf mikið af því þegar það eru tekin myndbönd af mér þegar bardagi er í gangi. Það sýnir hvernig mér líður þegar að bardaginn er í gangi. Ég er alltaf hálfpartinn inn í hringnum, við erum með ákveðið tungumál okkar á milli. Segja einhverja hluti sem enginn skilur nema við. Sem er svona boxari-þjálfari samband sem enginn skilur. Það lýsir mómentinu vel.“ Sigurinn var sætur á NMAðsend mynd Lærir af hinu góða og slæma Ronald nýtir bæði sigra og töp í hringnum sem mikilvæga reynslu. Tap á Norðurlandamótinu í fyrra hvatti hann áfram til að gera betur í ár og frá mótinu í fyrra hefur hann unnið hvert alþjóðlega mótið á fætur öðru. „Alltaf þegar að ég tapa einhverju móti þá er það eina sem kemst að að ég ætli að vinna það á næst. Það hefur alltaf gengið hingað til,“ segir Ronald og með sigri hans á mótinu þarf Davíð þjálfari að efna loforð. Húðflúrunum fjölgar Þú ert að fara fá þér tattoo? „Já. Ég hef alltaf haft það sem loforð, eftir að ég fór að fara með landsliðið á Norðurlandamótið. Að ef keppandi á mínum vegum myndi vinna mótið þá myndi ég láta flúra skammstöfun þeirra á mig. Ég er nú með nóg af tattúum fyrir. Ég er með ákveðið pláss sem ég held fyrir þetta. Það er bikar á mér með skammstöfuninni hennar Eriku og ég á bókaðan tíma að láta flúra á mig nafnið hans Ronalds. Þetta er bara eitthvað sem ég er stoltur af. Bara gaman.“ Davíð hefur nú lokið við að fá sér húðflúr tengt sigri Ronalds á Norðurlandameistaramótinu. Það má sjá hér fyrir neðan: Aðsend mynd
Box Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Sjá meira