Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 2. apríl 2026 15:18 Gjörningurinn hefur vakið mikla reiði í Frakklandi. AP Emmanuel Macron Frakklandsforseti segir ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um eiginkonu sína „hvorki smekkleg né viðeigandi“ en Trump gerði sér upp franskan hreim og gerði grín að frönskum starfsbróður sínum og eiginkonu hans í einkahádegisverði í Washington.
Macron lét óánægju sína með ummæli Trumps í ljós í samtali við blaðamenn í Suður-Kóreu þar sem hann er staddur í opinberum erindagjörðum. Hvíta húsið hafði skömmu áður birt ummæli Bandaríkjaforseta á eigin opinberu Youtube-rás. „Ég ætla ekki að svara þeim, þau eru ekki svaraverð,“ sagði Macron aðspurður. Viðbrögðin við hegðun Trumps hafa ekki staðið á sér í Frakklandi. Um var að ræða hálfgert uppistand sem Donald Trump bauð gestum sínum upp á í hádegisverði sem hann hélt í gær, miðvikudag. Meðal gesta voru trúar- og þjóðarleiðtogar. „Enn að jafna sig“ Trump ýjaði að því að Brigitte Macron forsetafrú væri ofbeldisfull í garð eiginmanns síns. „Ég hringi til Frakklands, í Macron, en konan hans fer einstaklega illa með hann. Hann er enn að jafna sig eftir hægri krókinn,“ agði Trump. Með hægri króknum vísar hann væntanlega til myndbands frá því í maí 2025 þar sem Brigitte virðist reka höndina í andlit mannsins síns þegar þau voru að stíga frá borði flugvélar í opinberri heimsókn í Víetnam. „Og ég sagði, Emmanuel, við myndum gjarnan vilja fá smá hjálp í Persaflóa þrátt fyrir að við séum að setja met í að taka vont ólk úr umferð og granda flugskeytum. Við værum alveg til í smá hjálp. Ef þú vildir vera svo vænn. Gerðu það, sendu skip strax,“ sagði Trump kaldhæðnislega. „Það stóra“ Þá setti Trump upp franskan hreim og lék Frakklandsforseta. „Nei, nei, nei, það getum við ekki gert, Donald. Við getum gert það eftir að stríðið er unnið,“ sagði Trump og skipti svo aftur í hlutverk síns sjálfs: „Ég sagði, nei, nei, ég þarf ekki á því að halda eftir að stríðið er unnið, Emmanuel.“ „Þá komst ég að þessu varðandi NATO: NATO verður ekki til staðar ef við lendum einhvern tímann í því stóra, þið vitið hvað ég á við með því stóra,“ sagði Trump án þess að fara nánar út í það.
Frakkland Bandaríkin Donald Trump Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira