Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði Agnar Már Másson skrifar 5. apríl 2026 14:11 Lars Boje situr undir ásökunum um alræði í hinum fjarhægi Borgaraflokk í Danmörku. AP Þingflokkur danska Borgaraflokksins er orðinn helmingi smærri eftir að tveir af fjórum þingmönnum flokksins hafa ýmist verið reknir eða sagt sig úr flokknum. Þriðji flokksmaður íhugar einnig afsögn úr flokknum, en formaðurinn er sakaður um alræði í flokknum.
Enn kvarnast úr þingliði bláu blokkarinnar, sem er kosningabandalag hægri- og miðhægriflokka á danska þjóðþinginu. Aðeins rúm vika er liðin frá því að Borgaraflokkurinn í Danmörku (d. Borgernes parti) hlaut fjóra kjörna þingmenn í kosningum þar í landi, en á þessum skamma tíma hefur þingflokkurinn minnkað um helming þar sem einn þingmaður var rekinn úr flokknum og annar þingmaður sagði sig úr honum. Sá fyrri, Jakob Harris, var rekinn eftir að hafa verið sakaður um misferli með fjármuni gjaldþrota fyrirtækis. Hann fór í leyfi vegna ásakananna en eftir að hann var rekinn úr Borgaraflokknum hætti hann í leyfinu. Lýsir alræði af hálfu flokksformannsins Emilie Schyttes þingkona sagði sig svo úr flokknum í gær og gagnrýndi flokksformanninn Lars Boje Mathiasen, sem hún lýsti sem alráðum í flokknum og sem hræsnara. Borgaraflokkurinn er popúlískur fjarhægriflokkur sem stofnaður var af Boje árið 2024, en fram að kosningunum hafði Boje verið flokksleysingi á þinginu frá því að honum var bolað út úr hinum svokallaða Nýja borgaralega flokki (d. Nye Borgerlige) árið 2023. Þegar Schytte sagði sig úr flokknum í gær lýsti hún því að Boje hefði öll völd í flokknum, frekar en borgararnir sem flokkurinn kennir sig við. Þar væri engin raunveruleg flokksstjórn og að flokksmenn gætu ekki haft nokkur áhrif á stefnu flokksins. Hún lýsti eftirsjá að því að hafa „stólað blint“ á Boje formann og sagði stjórnarfar hans stangast á við markmið flokksins um að færa völd í hendur borgaranna og tryggja gagnsæi og heiðarleika í stjórnmálum. Lars Boje hefur ekki svarað þessari gagnrýni Schytte en skaut þó á Schytte í gær og sakaði hana um lygar, væntanlega með vísan til þess sem Radio IIII greindi frá fyrr í vikunni, sem var að Emilie Schytte hefði gefið upp villandi upplýsingar á ferilskrá á vef Borgaraflokksins. Þar gaf hún til kynna að hún væri kennari í gervigreind á tímabilinu 2022 til 2024 en að sögn skólans var hún aðeins settur aðstoðarkennari yfir þriggja mánaða tímabil. Morten Dehn, sem er á lista flokksins, segist liggja undir feldi um hvort hann haldi áfram í Borgaraflokknum, að sögn TV2. „Ég þarf að ræða við Lars og sjá hvar við stöndum,“ sagði hann. Útséð að bláa blokkin geti myndað meirihluta Fyrr í vikunni var Cecilie Liv Hansen þingkonu einnig sparkað úr Frjálslynda bandalaginu (d. Liberal alliancen, LA), sem er einnig blár flokkur. Var það fyrir að upplýsa ekki um einkahagi sína að sögn flokksins, sem skýrði það ekki frekar. Danskir fjölmiðlar segja að maki Hansen hafi selt fíkniefni og makinn viðurkenndi það í færslu á Facebook. Hvorki Harris í Borgaraflokknum né Hansen í LA hyggjast segja af sér þingsætinu heldur hyggjast þau bæði taka sæti á þingi sem óháðir þingmenn. Schytte sagðist í gær ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hún haldi þingsætinu sem flokksleysingi eða segi því af sér. Að sögn DR hefur þessi brotthvörf gert útslagið um þann möguleika að bláa blokkin geti myndað meirihluta með Moderaterne, miðjuflokki Lars Løkke Rasmussen sem er talinn eiginlegur sigurvegari þingkosninganna þar sem hvorki rauða né bláa blokkin gat myndað meirihluta án Moderaterne. Ríkisstjórnarmyndun er ekki lokið en Mette Frederikssen úr Sósíaldemókrötum, sem hlutu flest atkvæði í kosningunum þrátt fyrir verulegt fylgistap, hefur enn ríkisstjórnarumboðið.
Þingkosningar í Danmörku Danmörk Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira