„Þetta gefur okkur ekkert forskot“ Valur Páll Eiríksson skrifar 9. apríl 2026 11:31 Sölvi Geir og Víkingar eiga titil að verja. Vísir/Sigurjón Það kemur Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, lítið á óvart að hans mönnum sé spáð Íslandsmeistaratitlinum. Að verja titil síðasta árs er svo annar handleggur.
Víkingur var efstur í spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna í Bestu deildinni sem opinberuð var í gær. Sölvi segir það ekki koma mikið á óvart. „Svo sem ekki. Það er yfirleitt þannig að liðið sem vinnur er spáð titlinum aftur. Við höfum styrkt okkur vel á markaðnum svo þetta kemur svo sem ekki á óvart,“ segir Sölvi og bætir við: „En þetta gefur okkur ekkert forskot. Við þurfum að leggja mikla vinnu í þetta og gera í raun miklu betur en í fyrra. Við erum með stórt skotmark á bakinu og þjálfarar annarra liða þurfa ekki að mótviera liðið sitt mikið til að mæta öflugt á móti okkur.“ Iðulega hefur ríkjandi meisturum verið spáð titilvörn en það hefur ekki gengið eftir undanfarin ár. Engu liði hefur tekist að verja Íslandsmeistaratitilinn síðan Valur gerði það undir stjórn Ólafs Jóhannessonar árið 2018. „Það hefur reynst erfitt síðustu ár að vinna titilinn aftur. Með komu Sambandsdeildarinnar hefur þetta verið ennþá erfiðara. Það er bara skemmtileg áskorun sem stendur frammi fyrir okkur núna. Við stefnum á að ná langt og ná okkar markmiðum,“ segir Sölvi. En hvað mun einkenna komandi fótboltasumar? „Eigum við ekki að segja gott veður og skemmtilegir fótboltaleikir sem gefa okkur góðar minningar og skemmtileg atvik. Þetta verður skemmtilegt.“ Víkingur mætir Breiðabliki í fyrsta leik Bestu deildarinnar á föstudagskvöldið kemur klukkan 19:15. Sá leikur verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland. Klippa: Spáin kemur lítið á óvart
Víkingur Reykjavík Besta deild karla Íslenski boltinn Mest lesið Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Fleiri fréttir Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Sjá meira