Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Ritstjórn skrifar 15. apríl 2026 21:53 Gabríel Douane Boama við aðalmeðferð í héraðsdómi 2023. Vísir Gabríel Douane Boama sem grunaður er um tilraun til manndráps eða um sérstaklega hættulega líkamsárás með öxi hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins. Hann er grunaður um að hafa ráðist inn á heimili manns og ráðist að honum með exi þann 5. mars en lögregla handtók hann í fjölbýlishúsi þar sem hann var í óðaönn að þvo fötin sín.
Í úrskurði Landsréttar kemur fram að Gabríel sé úrskurðaður í gæsluvarðhald til 6. maí vegna málsins. Gabríel ásamt félaga sínum sé sakaður um að hafa ruðst inn á heimili brotaþola, manns sem var þar með kærustu sinni. Þegar viðbragsaðilar mættu á vettvangi hafi maðurinn verið blóðugur og með nokkra skurði á höfðinu. Hann hafi tjáð lögreglu að mennirnir hefðu komið óboðnir á heimilið og gerandinn slegið hann með exi í höfuðið. Þeir hafi einnig verið með hníf og sett öxina í bakpoka eftir árásina. Kærasta mannsins sagði í skýrslutöku að hún hafi heyrt þegar útidyrahurðinni var sparkað upp. Í kjölfarið hafi hurð að herbergi þeirra verið „tætt með vopnum.“ Hún kvaðst hafa séð tvo grímuklædda menn, annar þeirra vopnaður öxi og hinn hnífi. Þeir hefðu ráðist á manninn hennar og sagðist hún þekkja mennina og lýsti þeim nánar í skýrslutökunni. Hún kvað annan mannanna hafa notað öxina og hinn hafi verið „slice-a“ með hnífnum. Hún hafi haldið að það væri verið að drepa manninn. Slökuðu á í blokkinni Í úrskurði Landsréttar kemur fram að lögregla hafi farið að heimili félaga Gabríels. Þar hafi lögregla fundið Gabríel og félaga hans í stigaganginum á leið upp úr kjallaranum. Hvorugur mannanna var í skóm. Sögðust þeir hafa verið að slaka á í sameign húsnæðisins en klukkan var langt gengin í þrjú um nótt. Við leit í íbúðinni tóku lögreglumenn eftir því að þvottavél var í gangi og að verið var að þrífa fatnað. Var hald lagt á fatnaðinn í vélinni auk tveggja bakpoka sem fundust í íbúðinni. Fram kemur að Gabríel hafi verið yfirheyrður þennan sama dag en neitað að tjá sig. Í úrskurðinum kemur fram að Gabríel sé grunaður um fleiri brot, líkt og áður hefur komið fram. Fjöldi mála sé hjá lögreglu og dómstólum landsins þar sem hann er undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem geti varðað allt að sextán ára fangelsi. Í byrjun febrúar hafi hann lokið afplánun tveggja ára dóms en hafi síðan þá verið handtekinn í tvígang og er meðal annars grunaður um að hafa 7. febrúar veist að erlendum ferðamanni og stungið hann í bakið með hnífi.
Lögreglumál Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Erlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Innlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Innlent Fleiri fréttir Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Sjá meira