Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Magnús Jochum Pálsson skrifar 16. apríl 2026 11:33 Jack Byrnes, leikinn af Robert De Niro, tekur Oliviu Jones, sem er leikin af Ariönu Grande, í lygamælispróf í Focker-in-Law. Gaylord Focker kom áhorfendum fyrst fyrir sjónir um aldamótin í Meet the Parents. Síðan hafa bæst við tvær framhaldsmyndir um Focker-fjölskylduna og nú er sú fjórða á leiðinni, Focker-in-Law. Stórstjarnan Ariana Grande bætist þar í hópinn líkt og sjá má í glænýrri stiklu.
Stikla fyrir fjórðu myndina í seríunni var frumsýnd á ráðstefnunni CinemaCon í gær en Ben Stiller og Robert De Niro, sem snúa auðvitað aftur í hlutverkum sínum, kynntu hana inn. Auk þeirra munu Owen Wilson, Blythe Danner og Teri Polo snúa aftur meðan Grande, Beanie Feldstein og Skyler Gisondo bætast við hópinn. Focker-in-Law fjallar um son Gaylords Focker, leikinn af Gisondo, sem trúlofast konu, leikin af Grande, sem virðist kolröng fyrir hann. Faðirinn og afinn fara auðvitað að vasast í málunum. Stiller sagði fimmtán ára pásuna milli þriðju myndarinnar og þeirrar nýju „algjörlega viljandi“ og benti á að hann væri nú svipað gamall og De Niro var í fyrstu myndinni fyrir 26 árum síðan. „Þið gætuð sagt að ég sé nýi De Niro seríunnar,“ bætti hann við. Leikstjóri myndarinnar er John Hamburg, sem vann að handritum fyrstu þriggja myndanna, sem skrifaði jafnframt handrit þeirrar nýju. Hann hefur áður leikstýrt góðum grínmyndum á borð við Along Came Polly (2004) og I Love You, Man (2009) Meet the Parents (2000) fjallaði um fyrstu kynni hjúkrunarfræðingsins Focker (Stiller) af tengdaforeldrum sínum og erfiðum tengdaföður (De Niro). Hún halaði inn 330 milljónum dala sem varð til þess að framhaldið, Meet the Fockers, kom út fjórum árum síðar. Þá bættust Dustin Hoffman and Barbra Streisand við hópinn og rakaði hún inn rúmlega hálfum milljarði. Jay Roach leikstýrði fyrstu tveimur myndunum en síðan tók Paul Weitz við þriðju myndinni, Little Fockers (2011), sem halaði inn rúmum 300 milljónum og var langsamlega slöppust í seríunni. Héldu þá flestir að serían væri búið spil en Fockerarnir eru ekki dauðir úr öllum æðum líkt og sjá má í stiklunni að ofan.
Bíó og sjónvarp Bandaríkin Hollywood Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Lífið Fleiri fréttir Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Hera verður ástkona JFK Margt að sjá í nýrri stiklu fyrir þættina um Harry Potter Colbert skrifar handrit nýrrar myndar úr Hringadróttinssögu Stjarna úr Married at First Sight látin Chuck Norris er látinn Breyta Reykjavík í kvikmyndagallerí út mánuðinn Chuck Norris lagður inn á spítala Spacey sleppur við dómsalinn með sátt við þrjá menn Senn kemur Zendaya: Sturlaðar stiklur fyrir Dune III og Köngulóarmanninn Færðu Penn Óskar fyrst hann missti af hátíðinni Sjöunda jafnteflið á 98 árum Bæði fyrsta konan og svarta manneskjan til að vinna One Battle After Another bar sigur úr býtum Hulunni svipt af Taskmaster Hvernig fer Óskarinn? Teboð með Ryan Gosling og helstu skvísunum í Smárabíói Rapparar slíðruðu sverðin á galaforsýningu Stikla úr Jóhönnu af Örk Gagnrýndi Tarantino fyrir n-orðið og fékk gusuna yfir sig Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Sjá meira