Innlent

Eldur olli miklum skemmdum í kjallara

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Slökkvilið var fljótt að ráða niðurlögum eldsins.
Slökkvilið var fljótt að ráða niðurlögum eldsins. Vísir/Vilhelm

Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna tilkynningar um reyk í fjölbýlishúsi í Kópavogi við Fossvog. Upp kom eldur í kjallaraíbúð, Furugrund 42 en miklar skemmdir urðu á íbúðinni vegna eldsins.

Ekki er vitað að svo stöddu hvernig kviknaði í. Íbúðin var mannlaus. Þetta staðfestir slökkvilið. Útkall barst fyrir 45 mínútum síðan og var slökkvilið skjótt á vettvang og tók stuttan tíma að slökkva eldinn.

Sjúkraflutningamenn voru fljótir á vettvang en þurftu sem betur fer frá að hverfa verkefnalausir.Vísir/Vilhelm
Fjöldi fólks fylgdist með störfum slökkviliðs.Vísir/Vilhelm
Viðbragsaðilar ræða saman á vettvangi.Vísir/Vilhelm
Eldurinn kom upp í kjallaraíbúð fjölbýlishússins.Vísir/Vilhelm
Lögregla var slökkviliði til halds og trausts.Vísir/Vilhelm
Skemmdir má sjá að utan. Vísir/Vilhelm

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×