Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Agnar Már Másson skrifar 26. apríl 2026 16:00 Maðurinn sem lést var 24 ára Íslendingur. Peter Vestergaard hjá lögreglunni á Fjóni staðfestir þetta í samtali við Vísi. Ungi íslenski karlmaðurinn sem lést í fallhlífarstökki í Danmörku í morgun var þar í fallhlífanámi. Lögreglan á Fjóni segir við Vísi að hann hafi ekki verið með lögheimili í Danmörku. Að sögn varaformanns Fallhlífasambands Danmerkur var um svokallað „static spring“-stökk að ræða, sem þykir ein öruggasta kennsluaðferðin í fallhlífastökki.
Greint var frá því fyrr í dag að 24 ára íslenskur karlmaður hefði látið lífið í fallhlífastökki í Óðinsvéum á Fjóni í morgun. Peter Vestergaard hjá lögreglunni á Fjóni í Danmörku staðfestir þetta í samtali við Vísi. Hann segir að tilkynning um slysið hafi borist viðbragðsaðilum klukkan 11.30 að staðartíma, eða 9.30 að íslenskum tíma. Vestergaard segir að ungi maðurinn hafi ekki verið með lögheimili í Danmörku en hafi verið í Óðinsvéum til þess að sækja fallhlífarstökksnám. Lögreglumaðurinn kveðst ekki geta sagt til um hvar ungi maðurinn hafi búið en sagði að lögregla hefði verið búin að hafa samband við aðstandendur. Átti að vera öruggt stökk Nikolaj Larsen, varaformaður Fallhlífasambands Danmerkur, segir í samtali við Vísi að ungi maðurinn hafi stokkið á vegum Odense Faldskærmscenter, nálægt H.C. Andersen-flugvellinum í Óðinsvéum. Hann segir að slysið verði rannsakað af rannsóknarnefnd og lögreglu. Veistu meira? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullum trúnaði heitið. Larsen segir að of snemmt sé að segja til um hvernig slysið hafi orsakast en tekur þó fram að fallhlífin hafi opnast og verið fyrir ofan stökkvarann þegar hann lenti á jörðinni. Hann útskýrir að um svokallað „static line“-stökk hafi verið að ræða, þar sem fallhlífin er tengd við flugvélina og opnast sjálfkrafa. „Vottum aðstandendum samúð“ Larsen segir að auk íslenska mannsins hafi tveir aðrir nemendur og einn kennari verið um borð í flugvélinni þaðan sem var stokkið. Maðurinn hefði þegar lokið bóklegri kennslu í faginu. „Við vottum aðstandendum samúð,“ bætir Larsen við í samtali við Vísi.
Danmörk Íslendingar erlendis Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira