Í framboði til borgarstjórnar með söng innflytjandans í hjarta Tristan Gribbin skrifar 6. maí 2026 08:12 Ég féll kylliflöt fyrir Íslandi og íslensku þjóðinni strax í fyrstu heimsókn minni til landsins í febrúar árið 1995. Sumarið á eftir flutti ég hingað á vængjum ástarinnar því Ísland hafði algerlega fangað hjarta mitt. Mér fannst landið og samfélagið hér umfaðma mig þótt tilfinning innflytjandans hafi aldrei náð að yfirgefa mig alveg. Þegar Guðmundur Ingi Þóroddsson, oddviti Flokks fólksins í Reykjavík, bað mig að taka sæti á framboðslista flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar var ég bæði upp með mér og undrandi og fannst hugmyndin í fyrstu dálítið yfirþyrmandi. Þótt ég hafi náð nokkuð góðum tökum á íslenskunni er íslenskan mín langt í frá fullkomin. Komandi frá Kaliforníu í Bandaríkjunum hafði mér líka alltaf gengið erfiðlega að skilja hvað sneri upp eða niður í íslenskum stjórnmálum með sínu flókna fjölflokka kerfi. En ég er líka með írskt blóð í æðum og kannski þess vegna dálítið uppreisnargjörn. Þannig að ég, innflytjandinn, ákvað að láta slag standa. Þátttaka í kosningabaráttunni á undanförnum vikum hefur síðan breytt sýn minni á stöðu mála og það hefur komið mér á óvart hvernig mér er yfirleitt tekið fagnandi. Lærdómsríkar pallborðsumræður í Veröld Í síðustu viku tók ég þátt í pallborðsumræðum í Veröld, húsi Vigdísar, á viðburði sem Reykjavíkurborg skipulagði undir merkjum „menningarsendiherra”. Þessum viðburði var ætlað að auðvelda innflytjendum að átta sig á kosningarétti sínum og flokkafyrirkomulaginu á Íslandi. Það var fullt út úr dyrum í Veröld þennan dag af innflytjendum eins og mér ásamt íslenskum frambjóðendum ólíkra framboða. Mér fannst þetta mjög spennandi og fékk fyrst ellefu fulltrúa til að taka til máls. Við hliðina á mér sat Einar fyrrverandi borgarstjóri og við hina hlið hans sat spænsk kona fyrir Viðreisn. Einnig var þarna kona að nafni Natalia fyrir nýjan flokk sem kallast Góðan daginn og annars staðar við pallborðið sat vinkona mín Safa Jemai frá Túnis fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Fundargestir voru af fjölmörgum þjóðernum. Mér var sagt að aðsókn innflytjenda hafi verið mun meiri en hún var á sams konar viðburð fyrir borgarstjórnarkosningarnar árið 2022. Þá hefðu fáir eða engir innflytjendur verið fulltrúar framboða í pallborðinu og aðeins um tólf aðrir gestir í salnum. Tímarnir hafa svo sannarlega breyst hratt og það þurfa þeir einnig að gera. Mikilvægt að rödd innflytjenda fái að heyrast Á fundinum komst ég að því að einungis um fimmtán prósent innflytjenda sem hafa kosningarétt í Reykjavík notfæri sér kosningaréttinn. Þetta er sláandi lítil kosningaþátttaka vegna þess að innflytjendur hafa margt til málanna að leggja og þurfa að láta rödd sína heyrast. Hvar eru Pólverjarnir til dæmis sem eru fjölmennastir innflytjenda á Íslandi sem samanlagt eru um tuttugu prósent íbúa landsins? Það er mikilvægt að innflytjendur séu upplýstir um að til þess að mega kjósa í sveitarstjórnarkosningum á Íslandi þarf fólk að hafa náð 18 ára aldri á kjördag og hafa búið í landinu lengur en í þrjú ár. Þúsundir karla og kvenna af erlendum uppruna gætu því kosið í sveitarstjórnarkosningunum hinn 16. maí næstkomandi. Engu að síður heyrum við ekki mikið frá þessum stóra hópi íbúa borgarinnar og landsins. Reykjavíkurborg ætti að halda vel utan um þennan fjölbreytta og stóra hóp íbúa, sérstaklega fólk innan hans sem er í viðkvæmri stöðu og á sér ekki málsvara, bæði þá sem tilheyra elstu og yngstu kynslóðunum, þá sem glíma við fötlun, fátækt og svo framvegis. Almennt geta Íslendingar fagnað því að hér er virkt lýðræði þar sem algengt er að 70-80 prósent atkvæðabærra karla og kvenna kjósi, sem er mun betra en þekkist þaðan sem ég kem í Bandaríkjunum og kjörsókn þykir góð ef hún er í kringum 45 prósent. Ég bind miklar vonir við að okkur hér á Íslandi takist betur til með inngildingu þeirra sem hingað flytja og vilja búa með okkur í þessari dásamlegu borg og frábæra landi. Við þurfum á ólíkum röddum að halda í kór landsmanna ef við viljum í raun vera land þar sem lýðræðið er haft í hávegum. Það er mikilvægt að nálgast þessi viðfangsefni með opnum huga og ég er svo heppin að hafa sérhæft mig á því sviði. Ég kenni íhugun og er frumkvöðull í tækniviðskiptum, þar sem íhugunaraðferðir mínar skipa mikilvægan sess. Flokkur fólksins fyrir eldri borgara Í grein sem ég birti nýlega á Vísi, Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn, fjallaði ég um aðhlynningarstörf mín á dvalarheimilinu Grund. Þar er heimilisfólki boðið upp á mjög heimilislegt og vinalegt umhverfi og þjónustan við gamla fólkið er til mikillar fyrirmyndar. Þetta er hins vegar ekki alls staðar raunin og sumir eldri borgarar fá hvergi pláss, sem er sorglegt vegna þess að við erum að tala um dýrmæta fólkið okkar sem byggði upp okkar góða samfélag, ömmurnar, afana, langömmurnar og langafana. Við verðum að gera betur við þennan viðkvæma hóp og kjósa fólk til ábyrgðar í borginni sem hefur sýnt það og sannað undir merkjum Flokks fólksins að það beri hagsmuni eldra fólksins fyrir brjósti. Þess vegna er ég á framboðslista með Guðmundi Inga, oddvita Flokks fólksins í Reykjavík. Hann hefur í tuttugu ár barist fyrir fólk í viðkvæmri stöðu og brennur fyrir málefnum þeirra sem eiga undir högg að sækja. Við þurfum fleira fólk eins og Gumma og fólkið sem skipar lista Flokks fólksins með honum. Flokksins sem frá upphafi hefur barist undir slagorðinu „fólkið fyrst og svo allt hitt“ og hefur svo sannarlega sýnt það og sannað eftir aðeins rúmt ár í ríkisstjórn. Á morgun, miðvikudaginn 7. maí, verð ég fulltrúi Flokks fólksins í pallborði á Hallveigarstíg á vegum W.O.M.E.N, Samtaka kvenna af erlendum uppruna. Ég vona og hlakka til að sjá sem flest ykkar þar og skora á alla innflytjendur sem hafa kosningarétt í borgarstjórnarkosningunum að mæta á kjörstað og nýta þennan mikilvæga rétt sinn. Höfundur skipar 9. sæti á lista Flokks fólksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Flokkur fólksins Innflytjendamál Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun