Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. maí 2026 07:36 Von der Leyen virðist bjarsýna á að málið klárist í tíma. Getty Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið Evrópusambandinu frest til 4. júlí næstkomandi til að klára afgreiðslu tollasamkomulags ríkjanna. Hótar hann að hækka tolla verulega ef það næst ekki.
Trump sagðist á Truth Social hafa rætt við Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og samþykkt að veita henni frest fram að 250 ára afmælisdegi Bandaríkjanna. Von der Leyen sagði í gær að ferlið væri í gangi og það ætti að klárast fyrir júlíbyrjun. I had a very good call with @POTUS.We discussed the situation in the Middle East and our close coordination with regional partners.We are united that Iran must never posses a nuclear weapon. Recent events have clearly shown that the risks to regional stability and global…— Ursula von der Leyen (@vonderleyen) May 7, 2026 Samkomulag Bandaríkjanna og Evrópusambandsins kveður á um 15 prósent toll á flestar útflutningsvörur bandalagsins. Babb kom hins vegar í bátinn þegar Hæstiréttur Bandaríkjanna komst að þeirri niðurstöðu að forsetinn hefði farið fram úr sér þegar hann ákvarðaði sjálfur um tolla á ríki heims. Forsetinn brást við með því að leggja tíu prósent toll þvert á línuna en alríkisdómstóll dæmdi þá ákvörðun ólögmæta í gær. Ákvörðun Hæstaréttar nær ekki til afmarkaðra tolla, til að mynda á bifreiðar, sem áttu að verða 15 prósent. Óánægður með hægagang af hálfu Evrópusambandsins, hótaði Trump því í síðustu viku að hækka tollinn í 25 prósent. Þingmenn Evrópuþingsins hafa þegar lagt blessun sína yfir samkomulagið, með skilyrðum, en það er háð lokasamþykki einstakra ríkja.
Bandaríkin Evrópusambandið Skattar, tollar og gjöld Donald Trump Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira