Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Samúel Karl Ólason skrifar 8. maí 2026 10:40 Bréfið sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann reyndi að svipta sig lífi í júlí 2019. AP Forsvarsmenn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna segja að bréf sem Jefrey Epstein á að hafa skrifað áður en hann reyndi að svipta sig lífi í fangelsi hafi aldrei ratað til ráðuneytisins. Bréfið var opinberað fyrr í vikunni í tengslum við annað mál en starfsmenn ráðuneytisins eiga lögum samkvæmt að hafa opinberað öll skjöl þeirra sem tengjast máli auðjöfursins og kynferðisbrotamannsins heitna.
Í svari við fyrirspurn blaðamanna AP fréttaveitunnar um af hverju bréfið var ekki hluti af Epstein-skjölunum svokölluðu segja talsmenn ráðuneytisins að þar á bæ hafi enginn vitað af bréfinu. „Uppruni bréfsins hefur ekki verið sannreyndur og þetta er einnig í fyrsta sinn sem ráðuneytið sér það,“ sagði í svari ráðuneytisins. Umrætt bréf er sagt hafa verið skrifað af Epstein þegar hann sat í fangelsi í New York árið 2019. Þá mun hann hafa reynt að svipta sig lífi en hann fannst í klefa sem hann deildi með manni sem heitir Nicholas Tartaglione, og var hann búinn að vefja laki um háls sinn. Sjá einnig: Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Í fyrstu hélt Epstein því fram að Tartaglione hefði ráðist á sig en dró það síðar til baka. Hann var færður í einsmannsklefa og svipti sig þar lífi rúmum tveimur vikum síðar. Epstein stóð frammi fyrir ákærum um kynferðisbrot og mansal á þeim tíma. Tartaglione er fyrrverandi lögreglumaður en hann hefur verið dæmdur fyrir að myrða fjóra. Hann var dæmdur árið 2023 en segist hafa fundið bréfið í myndasögu í klefanum sem hann deildi með Epstein, eftir að hann reyndi að svipta sig lífi þann 23. júlí 2019. Epstein dó þann 10. ágúst. Hann segist einnig hafa látið lögmenn sína fá bréfið svo hann gæti seinna varist ásökunum um að hafa ráðist á Epstein, ef til þess kæmi. Blaðamenn New York Times fengu dómarann í máli Tartaglione til að opinbera bréfið fyrr í vikunni. Í því stóð: „Þeir rannsökuðu mig í marga mánuði. Fundu EKKERT!! Það eru forréttindi að geta valið sér tíma til að kveðja. Hvað viltu að ég geri – fari að grenja!! EKKI GAMAN – EKKI ÞESS VIRÐI!!“ Bréfið hefur frá árinu 2001 verið í geymslu í alríkisdómshúsi í New York en óljóst er hvernig það endaði í dómsgögnum í málinu gegn Tartaglione.
Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Erlend sakamál Tengdar fréttir Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Karlmaður var handtekinn vegna gruns um vopnaburð nærri heimili Andrésar fyrrverandi prins. Fréttir eru um að maðurinn hafi ógnað Andrési þar sem hann var á gangi með hundum sínum. 7. maí 2026 15:43 Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vikið Pam Bondi úr embætti dómsmálaráðherra. Todd Blanche, staðgengill hennar, tekur við af henni. 2. apríl 2026 18:19 Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Töluvert gekk á í yfirheyrslum Clinton-hjónanna í síðustu viku fyrir þingnefnd í Bandaríkjunum sem rannsakar innihald Epstein-skjalanna. Hillary gekk út úr yfirheyrslu sinni og Bill útskýrði pottamyndina af honum sem fannst í skjölunum. Myndbandsupptökur af yfirheyrslunum hafa nú verið birtar. 3. mars 2026 12:00 Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og forsetafrú, var ómyrk í máli þegar hún mætti fyrir þingnefnd í gær, þar sem hún virðist hafa verið spurð bæði út í Jeffrey Epstein en einnig aðra alls óskylda hluti. 27. febrúar 2026 07:48 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Sjá meira
Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Karlmaður var handtekinn vegna gruns um vopnaburð nærri heimili Andrésar fyrrverandi prins. Fréttir eru um að maðurinn hafi ógnað Andrési þar sem hann var á gangi með hundum sínum. 7. maí 2026 15:43
Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vikið Pam Bondi úr embætti dómsmálaráðherra. Todd Blanche, staðgengill hennar, tekur við af henni. 2. apríl 2026 18:19
Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Töluvert gekk á í yfirheyrslum Clinton-hjónanna í síðustu viku fyrir þingnefnd í Bandaríkjunum sem rannsakar innihald Epstein-skjalanna. Hillary gekk út úr yfirheyrslu sinni og Bill útskýrði pottamyndina af honum sem fannst í skjölunum. Myndbandsupptökur af yfirheyrslunum hafa nú verið birtar. 3. mars 2026 12:00
Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og forsetafrú, var ómyrk í máli þegar hún mætti fyrir þingnefnd í gær, þar sem hún virðist hafa verið spurð bæði út í Jeffrey Epstein en einnig aðra alls óskylda hluti. 27. febrúar 2026 07:48