Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Jakob Bjarnar skrifar 8. maí 2026 16:17 Kristinn segir málið allt prófstein á íslenskt samfélag en hann virðist sannfærður um að lögregluembættið fyrir norðan hafi gengið erinda Samherja í máli Páls Steingrímssonar á hendur Þóru Arnórsdóttur. vísir/ Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks ritar mikla grein sem hann birtir á Vísi þar sem hann rekur ítarlega mál Páls Steingrímssonar skipsstjóra á hendur Ríkisútvarpinu og Þóru Arnórsdóttur fyrrverandi ritstjóra Kveiks. Hann segir ekki standa stein yfir steini, hvorki í málatilbúnaði Páls skipstjóra, sem hann segir mótsagnakenndan auk þess sem Kristinn fordæmir aðkomu lögreglunnar á Norðurlandi eystra. „
Alls tók það á fjórða ár að komast að þeirri niðurstöðu að blaðamenn hefðu engin lög brotið. Það er sérstakt rannsóknarefni hvað liggur að baki þeim rembingi embættisins að reyna að koma höggi á blaðamennina. Og það er líklegast þar sem eini glæpurinn finnst í þessu máli – í fullkomlega óeðlilegum framgangi embættis Páleyjar Borgþórsdóttur lögreglustýru og Eyþórs Þorbergssonar, staðgengils hennar,” segir Kristinn meðal annars. Kristinn var kallaður fyrir sem vitni í málinu og víst er að hann er ekki með öllu hlutlaus í því. Lögreglan að ganga erinda Samherja Kristinn vill ekki ganga svo langt að fullyrða að þjónkun embættisins við Samherja hafi valdið því að lögreglurannsókn á hendur blaðamönnum stóð svo lengi, þar sem engar haldbærar sannanir voru til staðar en hann gengur býsna langt í þá átt. En hann hefur áður haft uppi slíkar ásakanir. Hann segir vert að benda á, í þessu samhengi, að Samherji, hvar Páll starfaði og vildi verja, væri kjölfesturisi í atvinnulífi og samfélagi á starfssvæði þeirra fyrir norðan. „Þessir embættismenn fóru í starfi sínu langt út fyrir mörk hins eðlilega og virtust leggja lykkju á leið sína í tilraunum til að koma höggi á blaðamennina,” segir Kristinn. Hann segir yfirlýsingar embættisins þess efnis að þó málið hafi fjarað út sé ekki þar með sagt að sakborningar séu saklausir og slíkar dylgjur séu fordæmalausar. Enda gangi þær á skjön við grunnreglur réttarrikisins. Alvarleg kælingaraðferð gegn fjölmiðlum „Skeytingarleysi gagnvart því að setja hóp blaðamanna á sakamannabekk, án þess að nokkrar röklegar forsendur undirbyggðu það, ósaði af starfsmönnum embættis Lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Þegar héraðsdómari féllst á röksemdir eins blaðamannsins um að ólögmætt væri að boða hann í skýrslutöku (þeim dómi var snúið í Landsrétti) brást Eyþór Þorbergsson, staðgengill lögreglustjóra og aðstoðarsaksóknari, ókvæða við og sagði í viðtali: „Ef þú þolir ekki gagnrýni um sjálfan sig [sic] og það má segja um blaðamenn líka, eiga menn bara að vera í blómaskreytingum. […] Já sumir ættu að vera í blómaskreytingum“. Kristinn tekur til segir málið allt prófstein á íslenskt samfélag og tekur í því sambandi til kostanna fyrirbæri sem kallast SLAPP (skammstöfun fyrir „strategic lawsuit against public participation“) en þess háttar lögsóknir eru nú víða á Vesturlöndum taldar ein alvarlegasta þöggunar- og kælingaraðferð gegn frelsi fjölmiðla. „Auðugir aðilar ausa fé í tilgangslausar og oft dýrar málssóknir í ónæðisskyni til þess að vekja ótta og þá von að gagnaðilar verði þurrausnir peningalega þegar þeir þurfa að taka til varna. “
Samherjaskjölin Dómsmál Dómstólar Akureyri Byrlunar- og símastuldarmálið Lögreglan Lögreglumál Tengdar fréttir Segir Páleyju gengna til liðs við „skæruliðadeild Samherja“ Nokkuð fjölmenn mótmæli fóru fram bæði í Reykjavík og á Akureyri í dag vegna rannsóknar lögreglu á fjórum blaðamönnum og umfjöllun þeirra. Ræðumenn vildu meina að lögregla væri að vega að tjáningarfrelsinu og sumir gengu svo langt að kalla tilburði hennar fasíska. 19. febrúar 2022 22:00 Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira
Segir Páleyju gengna til liðs við „skæruliðadeild Samherja“ Nokkuð fjölmenn mótmæli fóru fram bæði í Reykjavík og á Akureyri í dag vegna rannsóknar lögreglu á fjórum blaðamönnum og umfjöllun þeirra. Ræðumenn vildu meina að lögregla væri að vega að tjáningarfrelsinu og sumir gengu svo langt að kalla tilburði hennar fasíska. 19. febrúar 2022 22:00