Handbolti

Al­freð fékk heiðurs­orðu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alfreð tekur hér við orðunni ásamt blómum. Svæðisstjórinn Sven Schulze afhenti honum verðlaunin.
Alfreð tekur hér við orðunni ásamt blómum. Svæðisstjórinn Sven Schulze afhenti honum verðlaunin. mynd/sc magdeburg

Það var staðið upp og klappað á heimavelli Magdeburgar í gær er Alfreð Gíslason var heiðraður.

Það var gert í hálfleik á leik Magdeburgar og Hamburgar. Alfreð fékk þá heiðursorðu Sachsen-Anhalt svæðisins en Magdeburg er innan þess svæðis.

Þetta er mesti heiður sem borgurum svæðisins getur hlotnast og er stórmál á þessum slóðum. Ekki mega fleiri en 300 bera orðuna hverju sinni.

Alfreð þjálfaði lið Magdeburgar frá 1999 til 2006. Undir hans stjórn vann liðið Meistaradeildina árið 2002 og varð Þýskalandsmeistari árið áður.

Alfreð er enn búsettur rétt utan Madgeburgar og starfar í dag sem þjálfari þýska landsliðsins í handknattleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×