Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. maí 2026 10:15 Ben-Gvir er einn þeirra ráðherra ríkisstjórnar Netanyahu sem vilja ganga hvað harðast gegn Palestínumönnum og virðist líta á þá sem annars flokks manneskjur. Getty/Amir Levy Itamar Ben-Gvir, þjóðaröryggismálaráðherra Ísrael, hefur verið harðlega gagnrýndur, bæði erlendis og heima fyrir, eftir að hann deildi myndskeiði sem sýnir hann lítilsvirða aðgerðasinna sem voru handteknir þegar þeir reyndu að komast til Gasa.
Fjöldi ríkja hefur fordæmt meðferðina á aðgerðasinnunum og framkomu Ben-Gvir, sem sést hæðast að fólkinu þar sem það krýpur á gólfinu með hendur bundnar fyrir aftan bak. Talsmenn hópsins, sem var stöðvaður þegar hann reyndi að sigla til Gasa, segja þrjá hafa verið flutta á sjúkrahús eftir meðferð Ísraelsmanna og þá leiki grunur á að fleiri séu rifbeinsbrotnir þar sem þeir eigi erfitt með að ná andanum. Sendiherra Bandaríkjanna, Mike Huckabee, sem er einn harðasti stuðningsmaður Ísrael, hefur kallað hegðun Ben-Gvir „fyrirlitlega“ og segir ráðherrann hafa vegið að virðingu þjóðar sinnar. Ben-Gvir birti myndskeiðið á samfélagsmiðlum með textanum „Velkomin til Ísrael“. Á myndskeiðinu sést hann meðal annars flagga ísraelska fánanum og gera lítið úr föngunum. Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, og utanríkisráðherrar Bretlands og Spánar eru á meðal þeirra sem hafa fordæmt framkomu Ben-Gvir. Leiðtogarnir gagnrýna ráðherrann harðlega fyrir að hafa ekki manndóm í sér til að sýna lágmarksvirðingu. Hvort það var framganga Ben-Gvir eða viðbrögð alþjóðasamfélagsins sem urðu til þess að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, tjáði sig um málið er ekki gott að segja en hann gagnrýndi sjálfur ráðherrann og sagði hegðun hans ekki í samræmi við gildi Ísraels. Utanríkisráðherrann Gideon Saar var enn harðorðari og sagði Ben-Gvir hafa skaðað ríkið með framgöngu sinni. „Þú ert ekki andlit Ísraels,“ sagði hann í yfirlýsingu á X. Ben-Gvir hefur ekki sýnt nein merki um iðrun og svaraði Saar á þá leið að Ísrael léti ekki lengur vaða yfir sig.
Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Sjá meira