Styrkur í fjárfestingu í sjávarútvegi Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar 23. maí 2026 10:32 Nokkur umræða hefur skapast í kjölfar fyrirspurnar Dags B. Eggertssonar þingmanns um fjárfestingar sjávarútvegsfyrirtækja utan eiginlegrar útgerðar. Í umræðunni hefur því meðal annars verið haldið fram að svokölluð „stórútgerð“ sé að „eignast Ísland“ og að um sé að ræða birtingarmynd „ofsagróða“ í sjávarútvegi. Þetta eru stór orð. Því skiptir máli að umræðan byggist á staðreyndum og samhengi fremur en slagorðum. Fjárfest í virðiskeðju atvinnugreinarinnar Í gær var birt skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem unnin var fyrir atvinnuvegaráðherra vegna fyrirspurnar þingmannsins. Skýrslan styður engan veginn þá mynd sem dregin hefur verið upp í umræðunni. Samkvæmt skýrslunni námu eignir þeirra 20 útgerðarsamstæðna sem skoðaðar voru í öðrum atvinnurekstri en eiginlegri útgerð fiskiskipa samtals tæplega 129 milljörðum króna árið 2024. Stór hluti þeirra fjárfestinga sem um ræðir tengist beint starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja og virðiskeðju greinarinnar sjálfrar — svo sem fiskvinnslu, sölu og dreifingu sjávarafurða, þjónustu við skipaflotann, fiskeldi og öðrum tengdum rekstri. Þeir sem þekkja íslenskt atvinnulíf eiga líklega erfitt með að finna því stað að þessar fjárfestingar jafngildi því að fyrirtækin séu að „kaupa Ísland“. Stór hluti eignarhlutanna sem falla undir umrædda tölu eru félög sem tengjast með einum eða öðrum hætti starfsemi sjávarútvegsins sjálfs. Um er að ræða eðlilega uppbyggingu á virðiskeðju greinar sem starfar á alþjóðlegum mörkuðum og stendur undir stórum hluta útflutningstekna þjóðarinnar. Að halda því fram að slíkar fjárfestingar jafngildi því að sjávarútvegurinn sé að „eignast Ísland“ er álíka og að halda því fram að tryggingafélög eða bankar séu að eignast landið vegna fjölbreyttra fjárfestinga í íslensku atvinnulífi. Samhengi fjárhæða Það er einnig mikilvægt að setja tölur í eðlilegt samhengi. Samkvæmt Hagstofu Íslands námu heildareignir sjávarútvegs árið 2024 um 1.093 milljörðum króna. Fjárfestingar utan eiginlegrar útgerðar sem fyrirspurnin tekur til nema því um 12% af eignum greinarinnar. Hér má einnig líta til þess að samanlagt markaðsvirði skráðu sjávarútvegsfélaganna þriggja, Brims, Síldarvinnslunnar og Ísfélagsins, er um 480 milljarðar króna. Í því ljósi blasir við að umræddar fjárfestingar eru hvorki til marks um yfirburðastöðu né einhvers konar yfirtöku á íslensku atvinnulífi. Raunar væri hitt athugunarvert ef stærstu útflutningsfyrirtæki landsins fjárfestu ekkert, byggðu ekki upp innviði eða tækju ekki þátt í þróun tengdra fyrirtækja og þjónustu. Öflug fyrirtæki um allan heim dreifa áhættu, fjárfesta í tengdum rekstri og byggja upp stoðstarfsemi í kringum eigin verðmætasköpun. Það er ekki merki um óeðlilega samþjöppun heldur eðlileg þróun í nútímahagkerfi. Enginn fótur fyrir ofsagróða Þá er mikilvægt að umræðan um svokallaðan „ofsagróða“ byggi á raunverulegum mælikvörðum en ekki pólitískum slagorðum. Í greiningu Jakobsson Capital, Arðsemi, ávöxtun og hagnaður, sem birt var 19. maí sl., kemur fram að ávöxtun bundins fjármagns í sjávarútvegi hafi á tímabilinu 2015–2025 verið um 8,5%, sem greiningin metur rétt undir ásættanlegri ávöxtun miðað við áhættu greinarinnar. Hjá stærstu skráðu sjávarútvegsfélögunum var ávöxtunin um 10,5%. Það hefði líklega verið gagnlegt ef þessi skýrsla hefði orðið umfjöllunarefni á Alþingi eða hjá ríkisfréttamiðlinum. En það varð hún auðvitað ekki. Í greiningunni segir meðal annars: „Það er ljóst að orð eins og ofsagróði og ofurhagnaður standast ekki skoðun í tilfelli sjávarútvegs og orkuframleiðslu. Í Instagram-filter stjórnmála og dægurmála hefur því þó iðulega verið haldið fram síðasta áratug að ofurhagnað sé að sækja í útgerð og sjávarútveg. Það eru orðin eins og hver önnur sannindi. Þessi greining bendir til að ávöxtun bundins fjármagns í sjávarútvegi og orkugeiranum sé ekki mikið hærri en á góðum innlánsreikningum… Í sjávarútveginum er töluverður munur á afkomu sjávarútvegsins í heild sinni og hjá stóru sjávarútvegsfyrirtækjunum á markaði. Bæði hvað varðar arðsemi bundins fjármagns og fjárhagslegan styrk. Á tímabilinu frá 2015 til 2025 var ávöxtun bundins fjármagns stóru sjávarútvegsfélaganna í Kauphöllinni vel viðunandi eða 10,5%. Sú ávöxtun mun þó væntanlega lækka en auðlindagjöld hafa hækkað síðustu 10 ár og hátt í tvöfaldast í ár. Ávöxtun bundins fjármagns í sjávarútvegi var tæplega viðunandi eða 8,5% og rétt undir ásættanlegri ávöxtun. Ásættanleg ávöxtun í sjávarútvegi liggur nokkuð hærra en í innviðum orkuframleiðslu vegna meiri rekstraráhættu. Ávöxtun áhættufjárfestingar sem liggur ekki mikið yfir innlánsvöxtum er fjárfestingarletjandi.“ Þetta eru mikilvægar staðreyndir inn í umræðu sem hefur á köflum einkennst meira af stóryrðum en greiningu. Upplýst umræða er mikilvæg Það hlýtur að vera lágmarkskrafa í upplýstri samfélagsumræðu að stjórnmálamenn og fjölmiðlar gæti meðalhófs þegar rætt er um heila atvinnugrein sem stendur undir verulegum hluta gjaldeyristekna þjóðarinnar, þúsundum starfa um land allt og mikilli verðmætasköpun fyrir samfélagið. Staðhæfingar um að fyrirtæki séu að „eignast Ísland“ eru ekki hlutlaus lýsing á staðreyndum heldur gildishlaðinn pólitískur málflutningur sem getur grafið undan trausti á einni mikilvægustu útflutningsgrein landsins án þess að fyrir því liggi efnislegar forsendur. Ég vona að skýrsla Hagfræðistofnunar stuðli að málefnalegri og staðreyndamiðaðri umræðu um fjárfestingar og eignarhald í íslensku atvinnulífi. Slík umræða verður að byggja á samhengi og raunverulegum efnahagslegum áhrifum. Því má ekki gleyma að vöxtur í útflutningi er grundvöllur sjálfbærs hagvaxtar og áframhaldandi góðra lífskjara. Við þurfum að skapa miklu meiri verðmæti í dag en í gær ef við ætlum að standa undir fyrirsjáanlegum skuldbindingum framtíðar sem tengjast meðal annars öldrun þjóðar. Fjárfesting er grundvallarforsenda þess að þetta takist og ný verðmæti verði til. Við erum í miklum vanda stödd ef stjórnvöld telja heilbrigða fjárfestingu meinsemd eða að hún kalli á enn frekari skattlagningu. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heiðrún Lind Marteinsdóttir Sjávarútvegur Mest lesið Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran Skoðun Skoðun Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar