Lætur hnefana tala Valur Páll Eiríksson skrifar 30. maí 2026 09:32 Kolbeinn Kristinsson er enn ósigraður á sínum atvinnumannaferli í hnefaleikum. Vísir/Bjarni Kolbeinn Kristinsson mun taka þátt í sínum tuttugasta atvinnumannabardaga í hnefaleikahringnum í Kaupmannahöfn í kvöld. Hann vonast eftir tuttugasta sigrinum.
Kolbeinn mætir Pavel Sour í Kaupmannahöfn í kvöld á viðburðinum Big Boys Boxing Gala. Bein útsending frá viðburðinum hefst klukkan 17:00 á Sýn Sport. Frægt er að Kolbeinn átti að taka þátt í fyrsta atvinnumannabardaga sögunnar hér á landi í Gamla bíó í síðasta mánuði en hætta þurfti við þann viðburð sökum meiðsla hans. Hann er nú búinn að jafna sig og er klár í slaginn. „Þetta var auðvitað helvítis skellur, alltaf leiðinlegt að lenda í meiðslum. En við tókum bara endurhæfingu, gerðum allt rétt og allt sem við áttum að gera. Ég er góður og það er bara næsta verkefni,“ segir Kolbeinn. Venju samkvæmt fór vigtun fram í gær þar sem hefð er fyrir því að hnefaleikakapparnir rífi kjaft hvor við annan. Kolbeinn stundar þá iðju þó lítið. „Ég er ekki mikið að gera það. Maður lætur bara höggin og hendurnar tala.“ Markmiðið að rota Tékkann snemma Andstæðingur Kolbeins er Tékki að nafni Pavel Sour sem er meðal reynslumeiri kappa álfunnar. Sá er 43 ára gamall og hefur tekið þátt í 52 bardögum á löngum ferli, unnið 21 en tapað 31. „Hann er mjög reyndir og hefur boxað við marga toppboxara. Hann er hávaxinn, svipað hár og ég. Hann er með gott double jab og er tricky. Það verður skemmtilegt verkefni að kljást við,“ Á að rota manninn? „Það eru alltaf afköst af ágóðanum. Ég er alltaf með checklista sem ég er að fara að gera í hausnum á mér, að vinna jabbið og búa til opnanir. Ef allt gengur vel ætti ég að rota hann tiltölulega snemma.“ Þannig að það á ekkert að tvínóna við hlutina og klára þetta bara snemma? „Já, bara um leið og færi opnast er þetta game over,“ segir Kolbeinn kokhraustur. Kolbeinn mætir Pavel Sour í Kaupmannahöfn í kvöld á viðburðinum Big Boys Boxing Gala. Bein útsending frá viðburðinum hefst klukkan 17:00 á Sýn Sport.
Box Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Sjá meira