Viðskipti innlent

Hagnaðurinn tæp­lega tvö­faldaðist milli ára

Árni Sæberg skrifar
Björn Ragnarsson er forstjóri Icelandia.
Björn Ragnarsson er forstjóri Icelandia. ICELANDIA

Ferðaþjónusturisinn Icelandia, sem hét áður Kynnisferðir, hagnaðist um 916 milljónir króna á síðasta ári. Hagnaður ársins 2024 nam 497 milljónum og jókst því um 84 prósent á milli ára. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 15 milljörðum á síðasta ári, samanborið við 12,3 milljarða árið áður, og jukust þar af leiðandi um 22 prósent á milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, nam 2,6 milljörðum en var 1,6 milljarðar árið áður. EBITDA jókst því um 55 prósent á milli áranna 2024 og 2025.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Icelandia sé fjölbreytt ferðaþjónustufyrirtæki með áherslu á ferðir og upplifanir undir vörumerkjum á borð við Reykjavik Excursions, Flybus, Icelandic Mountain Guides og Dive.is. Icelandia sinni einnig almenningssamgöngum og flutningum.

Forstjórinn ánægður

Haft er eftir Birni Ragnarssyni, forstjóra Icelandia, að hann sé ánægður með árangur ársins og þróunina milli ára. 

„Síðasta ár var í samræmi við þau markmið og áætlanir sem við settum okkur. Við höfum lagt mikla áherslu á tækniframfarir og sjálfvirknivæðingu sem hefur gefið okkur betri yfirsýn og gert okkur kleift að taka skjótar og upplýstar ákvarðanir. Vöxturinn er ánægjulegur og við horfum af bjartsýni til framtíðar.“ 

Vöxtur félagsins hafi bæði skýrst af innri og ytri vexti en á árinu hafi verið gengið frá kaupum á dagsferðahluta Hópbíla með kaupum á Reykjavík Sightseeing og Gray Line Iceland. Í október 2025 hafi samningur um sölu bílaleigurekstrar dótturfélagsins Bílaleigu Kynnisferða undir vörumerkinu Enterprise rent-a-car til Okkar bílaleigu ehf. verið undirritaður. Afhending rekstursins hafi farið fram í upphafi árs 2026. Að sögn Björns er þetta þáttur í stefnumótun samstæðunnar um að einbeita sér að kjarna ferðaþjónustunnar.

Sameinast öðrum risa

Í nóvember 2025  samkomulag um sameiningu Icelandia og Arctic Adventures, tveggja stærstu ferðaþjónustufyrirtækja landsins, verið undirritað. Samkomulagið sé gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun á báðum félögum og samþykki Samkeppniseftirlitsins. 

Sa„Við erum spennt fyrir þessum möguleika og trúum því að sameining okkar muni skila enn betri þjónustu fyrir ferðamenn á Íslandi,“ er haft eftir Birni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×