Viðskipti innlent

Opna opin­bera upp­lýsingagátt um al­myrkvann

Kjartan Kjartansson skrifar
Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari og ráðgjafi stjórnvalda vegna almyrkvans, með Daníeli Svavarssyni, skrifstofustjóra á skrifstofu samhæfingar í forsætisráðuneytinu.
Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari og ráðgjafi stjórnvalda vegna almyrkvans, með Daníeli Svavarssyni, skrifstofustjóra á skrifstofu samhæfingar í forsætisráðuneytinu. Stjórnarráðið

Stjórnvöld hafa opnað sérstaka upplýsingagátt um almyrkvann sem verður á sólu í ágúst. Þá hafa þau samið við Sævar Helga Bragason, vísindamiðlara, um ráðgjöf varðandi fræðslu um myrkvann og undirbúning stjórnvalda.

Von er á fjölda ferðamanna til landsins þegar almyrkvi á sólu verður sjáanlegur frá íslandi 12. ágúst. Reiknað er með álagi á samgöngur, útivistarsvæði og viðbragðsaðila á meðan.

Í upplýsingagáttinni sem stjórnvöld opnuðu á Íslandi.is í dag hafa verið teknar saman upplýsingar um hver sé best að fylgjast með sjónarspilinu, hvenær hann það verði og hvernig eigi að bera sig að við að fylgjast með honum á öruggan hátt.

Þá verður þar að finna upplýsingar um hvort og hvar gripið verður til takmarkana á umferð og hvaða götur verða lokaðar, að því er segir í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Upplýsingagátin er sögð verða uppfærð reglulega fram að almyrkvanum. Stýrihópur sem forsætisráðherra skipaði sér um safna upplýsingunum saman.

Stjórnvöld hafa skrifað undir samning við Sævar Helga um að vera þeim til ráðgjafar varðandi fræðslu og miðlun upplýsinga um almyrkvann og undirbúning stjórnvalda fyrir hann. Sævar Helgi rekur jafnframt eigin upplýsingavef um almyrkvann.

Höfuðborgarbúar hvattir til að halda sig heima

Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru hvattir til þess að leggja sitt af mörkum til að takmarka umferð og stuðla að almannaöryggi með því að fylgjast með myrkvanum heima hjá sér.

Almyrkvinn verður sjáanlegur frá vestanverðu landinu, frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga. Þetta verður fyrsti almyrkvinn sem sést frá Reykjavík í tæp sex hundruð ár.

Deildarmyrkvi á sólu sást frá Íslandi í mars árið 2015 og vakti mikla athygli. Nálgaðist hann að vera almyrkvi á Höfn og Neskaupsstað en í Reykjavík huldi tunglið 97,7 prósent skífu sólarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×