Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Samúel Karl Ólason skrifar 10. júní 2026 11:10 X-59 á flugi yfir Kaliforníu fyrr á árinu. NASA/Carla Thomas Verkfræðingum, vísindamönnum og flugmönnum Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) tókst í síðustu viku að fljúga flugvél hraðar en hljóðið ferðast. Næst á að fljúga tilraunaþotunni X-59 enn hraðar og síðan á að staðfesta að það geri flugvélin án hinna hefðbundnu láta sem fylgja því að rjúfa hljóðmúrinn.
Þotunni var flogið á um það bil 1,1-földum hljóðhraða, eða um 1.147 kílómetrum á klukkustund. Þegar flugvélum er flogið hraðar en hljóðið skapa þær einskonar höggbylgjur sem mynda hinar auðþekkjanlegu drunur sem fylgja slíkum hraða. Þessi tiltekna flugvél, X-59, er þó hönnuð til að dreifa úr þessum höggbylgjum og er markmiðið að hún skapi mun minni læti en aðrar flugvélar. Innan NASA er vonast til þess að lætin sem fylgja flugi X-59 séu sambærileg dunkinum sem fylgir því að skella bílhurð. Sjá einnig: Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Í tilraunafluginu á föstudaginn var X-59 í fylgd annarrar þotu sem var einnig að fljúga hraðar en hljóðhraði og var því ekki hægt að sannreyna hvort hávaðinn hefði verið mikill eða ekki, vegna hávaðans frá hinni þotunni, sem var af gerðinni F-15. Jared Isaacman, yfirmaður NASA, segir í yfirlýsingu á vef stofnunarinnar að X-59 hafi verið flogið sextán sinnum á síðustu þremur mánuðum og á næstu dögum standi til að fljúga henni á 1,4-földum hljóðhraða, um 1.488 kílómetrar á klukkustund. Þá verður henni einnig fylgt af annarri þotu en ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær til stendur að gera nánari greiningu á látunum frá X-59. Flugvélin var þróuð af sérfræðingum NASA og Lockheed Martin og er burðarliðurinn í svokölluðu Quesst-verkefni stofnunarinnar. Því verkefni er ætlað að þróa leiðir til að fljúga hraðar en á hljóðhraða án þess að því fylgi drunur og gífurleg læti. Reynist það svo að X-59 geti flogið hraðar en hljóð án tilheyrandi láta, stendur til að fljúga flugvélinni yfir byggðir í Bandaríkjunum og safna gögnum um upplifun fólks af því. Með þessu verkefni er vonast til þess að hægt verði að þróa hljóðfráar en hljóðlátar farþegaþotur í framtíðinni.
Flug Vísindi Bandaríkin Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira