„Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 13. júní 2026 16:34 Guðni Eiríksson er búinn að koma FH í efsta sæti Bestu deildar kvenna. Vísir/Pawel Cieslikiewicz „Mér fannst frammistaðan góð og ég er ánægður. Fínt að koma til baka eftir pásu, maður veit oft ekki hvernig liðið mans kemur til baka. Þetta var gott og leikmenn ferskir,“ sagði Guðni Eiríksson, þjálfari FH, eftir sigur í fyrsta leik eftir landsliðspásu í Bestu deildinni.
FH unnu sinn sjötta sigur í röð í deildinni í dag í Víkinni með 2-5 sigri á heimakonum. Á meðan töpuðu Blikar í Kópavoginum og hirtu því FH-ingar toppsætið í bili með sigrinum í dag. „Mér fannst við vera með leikinn allan tímann í höndunum þrátt fyrir að lenda 1-0 undir þá vorum við með leikinn fram að því líka. Mér fannst frammistaðan bera þess merkis að við ættum sigurinn skilinn og þrjú góð stig,“ sagði Guðni eftir leikinn. Mikið af færum voru í leiknum og hefði hæglega verið hægt að skora fleiri mörk, sérstaklega á lokakafla leiksins þar sem leikurinn breyttist í borðtennisleik. „Þetta var orðið ping-pong og það voru flóðgáttir, ekki bara hjá Víkingum heldur líka hjá okkur. Þær sköpuðu sín færi á þessu síðasta korteri. Klárlega opinn leikur en það er gaman að horfa á opinn leik, við fögnum því.“ Aðspurður út í tilfinninguna að vera kominn með FH liðið á topp deildarinnar, þá hafði Guðni þetta að segja. „Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni, bara ánægjulegt. Að sama skapi þá gaf þessi leikur okkur þrjú stig sem fer í pokann okkar góða og við verðum bara að halda áfram. Það er nóg eftir af þessu móti.“ Að lokum var Guðni spurður út í það hvort FH gæti orðið Íslandsmeistari, en sá titill hefur verið í áskrift hjá tveimur liðum síðastliðin átta ár. „Já, já, en við getum líka fallið. Við erum á okkar vegferð í okkar fasa og staðan í dag segir það að við séum á toppnum og það er jákvætt. Það er svo mikið eftir af þessu móti og það er gott fyrir kvennaknattspyrnuna ef það er ekki nákvæmlega þannig að það séu bara tvö lið sem ganga að titlinum vísum. Það séu fleiri sem að gera tilkall til þess að taka dolluna, þá er það jákvætt fyrir íslenska kvennaknattspyrnu. Það er bara gott að við séum eitt af þessum liðum og það eru fleiri lið sem geta hirt dolluna,“ sagði Guðni að lokum.
Besta deild kvenna FH Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjá meira