Viðskipti innlent

Efna til út­boðs hluta­bréfa að virði 125 milljóna dala

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Lisa Graver er forstjóri Alvotech.
Lisa Graver er forstjóri Alvotech. Aðsend og Vísir/Vilhelm

Alvotech efnir til útboðs á hlutabréfum í Bandaríkjunum að andvirði 125 milljóna Bandaríkjadala eða ríflega fimmtán og hálfum milljarði íslenskra króna.

Félagið tilkynnti um þetta í kvöld. Það hefur jafnframt veitt umsjónaraðilum útboðsins heimild til þess að kaupa til viðbótar allt að 15 prósent bréfanna sem bjóðast á útboðsgenginu.

Samhliða opna útboðinu segir í tilkynningunni að Alvotech geri ráð fyrir að gera áskriftarsamninga við tiltekna fjárfesta sem eru fagfjárfestar eða viðurkenndir gagnaðilar á Evrópska efnahagssvæðinu. Þeim fjárfestum verða boðin bréf á sama gengi og í almenna útboðinu.

„Alvotech hyggst nýta afrakstur af sölu hlutabréfanna til þess að fjármagna þróun nýrra hliðstæðna líftæknilyfja, í veltufé og til að standa straum af rekstrarkostnaði, þar á meðal til þess að vernda lyfjahugvit félagsins, almennra rekstrarútgjalda, fjárfestinga í fastafjármunum, kaupa á búnaði, í samstarfsverkefnum, forklínískum og klínískum rannsóknum, við vöruþróun, undirbúning markaðssetningar nýrra lyfja og til endurgreiðslu skulda eða endurfjármögnunar,“ segir í tilkynningunni.

Sameiginlegir umsjónaraðilar almenna útboðsins eru fjárfestingarbankarnir BofA Securities, Jefferies og Evercore ISI.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×