Viðskipti innlent

Byrjaði sem full­trúi í sölu­deild dóttur­fyrir­tækis og er nú fram­kvæmda­stjóri hjá Eim­skip

Eiður Þór Árnason skrifar
Elísa hefur starfað lengi innan samstæðu Eimskips.
Elísa hefur starfað lengi innan samstæðu Eimskips. Vísir/Anton Brink

Elísa Dögg Moraitis Björnsdóttir er nýr framkvæmdastjóri Innanlandssviðs hjá Eimskip. Sviðinu tilheyra innanlandsflutningar og vörudreifing, vöruhúsa- og frystigeymslustarfsemi ásamt fasteignaumsjón. Elísa tekur formlega við starfinu af Eddu Rut Björnsdóttur, fráfarandi framkvæmdastjóra, á næstu vikum.

Frá þessu er greint í tilkynningu til Kauphallar en Elísa hefur starfað hjá TVG-Zimsen, dótturfélagi Eimskips, frá árinu 2006 og hóf störf sem fulltrúi í söludeild. Á árunum 2010 til 2013 leiddi hún deild sértækra lausna á sviði sjóflutninga og starfaði hún sem deildarstjóri sjó- og flugdeildar á árunum 2013 til 2020. Hún hefur svo verið framkvæmdastjóri TVG-Zimsen frá árinu 2020.

Elísa er sömuleiðis stjórnarformaður North Atlantic Agency, samstarfsvettvangs umboðsmennsku- og flutningafyrirtækja í Norður-Atlantshafi og situr í stjórnum Eimskip Greenland og Gáru ehf., dótturfélaga Eimskips.

Jafnframt kemur fram í tilkynningu að hún sé með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. í hagfræði með áherslu á fjármálahagfræði og hagrannsóknir frá University of Sydney í Ástralíu. Elísa er gift Jannis Moraitis og á þrjú börn, auk þriggja stjúpbarna.

Vísir tók Elísu í kaffispjall árið 2025 þegar hún var enn framkvæmdastjóri TVG-Zimsen.

Ánægjulegt og spennandi

„Stjórnunar- og leiðtogahæfileikar Elísu, sem hún hefur sýnt sem framkvæmdastjóri TVG-Zimsen síðustu sex ár, munu skipta máli á sviði sem telur hátt í 400 starfsfólk og er með jafn fjölbreyttan rekstur og raun ber vitni. Fram undan eru spennandi verkefni á innanlandssviðinu og ég hlakka til að vinna með Elísu í nýju hlutverki,“ er haft eftir Vilhelm Má Þorsteinssyni, forstjóra Eimskips.

„Ég hlakka til að taka við nýju hlutverki og er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt. Eimskip býr yfir öflugri starfsemi og framúrskarandi starfsfólki um allt land. Það verður bæði ánægjulegt og spennandi að takast á við fjölbreytt verkefni hjá Eimskip Innanlands og kynnast starfseminni enn betur,“ er haft eftir Elísu. 

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×