Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 16. júní 2026 19:37 Guðjón Helgason er upplýsingafulltrúi Isavia. Isavia Upplýsingafulltrúi Isavia segir fyrirhugaða brottfarastöð eiga enga samleið með flugvallarrekstri og að hún eigi alls ekki heima á skilgreindu haftasvæði flugverndar. Stjórnvöld óskuðu eftir fundi í dag.
Dómsmálaráðuneytið leitar nú að húsnæði á Suðurnesjum undir nýja brottfararstöð, þar sem flóttamenn sem vísa á úr landi verða vistaðir nauðugir þar til unnt er að framfylgja brottvísuninni. Frumvarp dómsmálaráðherra þessa efnis var fest í lög á Alþingi í síðustu viku. Lögreglan á Suðurnesjum mun sinna brottfararstöðinni þegar hún á að vera tekin í gagnið fyrsta desember næstkomandi. Eigi alls ekki heima á vellinum Vilhjálmur Árnason, nýr bæjarstjóri í Reykjanesbæ, fagnaði því í dag að í auglýsingu sem hann hefur fengið að sjá komi fram að húsnæðið eigi að vera fjarri íbúabyggð. Sjálfur sagðist hann helst vilja að stöðin yrði innan athafnasvæðis Isavia. Hann áréttaði að hann ætti við að hún yrði innan „flugvallargirðingarinnar“. Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia segir Framkvæmdasýsluna hafa óskað eftir fundi með fulltrúum Isavia í dag til að ræða mögulegar lausnir vegna brottfararstöðvar. „Það er ljóst að úrræði sem þetta á enga samleið með flugvallarrekstri og alls ekki heima á skilgreindu haftasvæði flugverndar, þar sem alþjóðlegar öryggisreglur gilda,” segir hann þó. Allt til skoðunar Enginn fundur hafi verið haldinn. Freyr Gígja Gunnarsson upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins segir engar ákvarðanir hafa verið teknar varðandi húsnæði undir brottfararstöðina og að verið sé að skoða alls konar lausnir.
Isavia Reykjanesbær Brottfararstöð fyrir útlendinga Flug Keflavíkurflugvöllur Hælisleitendur Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Fleiri fréttir Kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Sjá meira