Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Áróra L Davíðsdóttir skrifar 17. júní 2026 10:50 Rannsókn máls Gilgo-raðmorðingjans spannar mörg ár en Heuermann var ekki grunaður fyrr en árið 2022. Vísir/AP Rex Heuermann, sem hefur hlotið viðurnefnið Gilgo Beach-morðinginn, verður leiddur fyrir dómara í dag. Búist er við því að hljóti þrjá samfellda lífstíðardóma. Ása Ellerup, fyrrverandi eiginkona Heuermann, verður ekki viðstödd dómsuppkvaðninguna, segir lögmaður hennar.
Rex Heuermann hefur þegar játað að hafa myrt sjö konur sem hurfu á milli 1993 og 2010. Auk þess viðurkenndi hann að hafa myrt aðra konu sem hann hafði ekki verið ákærður fyrir. Rannsókn lögreglu á Gilgo-raðmorðingjanum í New York spannar mörg ár en Heuermann var ekki grunaður fyrr en árið 2022. Konurnar hétu Melissa Barthelemy, Megan Waterman, Amber Costello, Maureen Brainard-Barnes, Sandra Costilla, Jessica Taylor og Valerie Mack. Heurmann játaði einnig að hafa myrt Karen Vergata en hefur ekki verið ákærður fyrir dauða hennar. Gilgo-strönd er í Suffolk-sýslu í New York-ríki í Bandaríkjunum. Saksóknaraembættið í Suffolk-sýslu sagði fyrr á árinu að búist væri við að hann yrði dæmdur í þrjá samfellda lífstíðardóma án möguleika á reynslulausn fyrir dauða Barthelemy, Waterman og Costello. Einnig er búist við samfelldum hundrað ára dómi fyrir morðin á Brainard-Barnes, Taylor, Costilla og Mack. Í frétt AP segir að Ása Guðbjörg Ellerup, fyrrverandi eiginkona Heuermann, og uppkomin börn þeirra hyggist ekki vera viðstödd uppkvaðningu dómsins „af virðingu við fjölskyldur fórnarlambanna,“ að sögn lögmanns hennar. Ása sótti um skilnað í júlí árið 2023. Lögmaður hennar sagði að lífi Ásu og barna hennar hefði verið snúið algerlega á hvolf. Heuermann var handtekinn í New York borg en skömmu eftir það komu lögregluþjónar á heimili þeirra hjóna og sögðu Ásu og börnum þeirra frá handtökunni og ákærunni. Lögmaðurinn segir fregnirnar hafa komið þeim alfarið í opna skjöldu.
Gilgo Beach-raðmorðinginn Íslendingar erlendis Erlend sakamál Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira