Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júní 2026 08:01 Stuðningsmenn Bröndby eru orðnir þekktir fyrir bullugang og vitleysu sína. Þessi ágæta kona í hjólastólnum tengist fréttinni ekki beint. Getty/Rob Casey/H. Armstrong Bröndby-stuðningsmenn eru enn á ný að koma félaginu sínu í vandræði alveg eins og þeir gerðu með því að ráðast á stuðningsmenn Víkinga eftir Evróputap í Víkinni síðasta sumar.
Danska félaginu hefur nú verið refsað fyrir árás á konu í hjólastól. Árás á konu í hjólastól og mikil notkun á flugeldum í umspilsleik við FC Kaupmannahöfn um Evrópusæti á Brøndby-leikvanginum kostar Brøndby nú þunga refsingu frá aganefnd knattspyrnunnar. Bröndby greinir frá því að félagið þurfi að greiða 100.000 danskar krónur og loka efri hluta Sydsiden-stúkunnar í fyrstu tveimur heimaleikjum komandi tímabils. Bröndby skrifar að félagið hafi kært gerandann fyrir árásina og hann hafi síðan verið ákærður, auk þess sem hann hefur fengið lífstíðarbann frá leikvanginum „fyrir þessa afar átakanlegu og siðlausu háttsemi“. Efter pyroteknik og overfald: Brøndby straffet https://t.co/81dzUu945p pic.twitter.com/uVAtitmRwt— B.T. (@btdk) June 17, 2026 Skelfing greip um sig hjá hinni 26 ára gömlu Mille Mastrup þegar á hana var ráðist á Bröndby-leikvanginum. Hún fæddist með vöðvarýrnun og átti að horfa á grannaslag F.C. Kaupmannahafnar og Bröndby IF úr hjólastólaplássi sínu í fremstu röð í austurstúkunni. Stuttu eftir að leikurinn hófst komust þrír stuðningsmenn Bröndby að því að Mille Mastrup héldi með erkifjendunum í FCK og byrjuðu að áreita hana. Ástandið magnaðist þegar hópur stuðningsmanna Brøndby kom auga á öndunarslöngu Mille Mastrup, sem er tengd við hjólastólinn hennar. Mille Mastrup og aðstoðarkona hennar svipuðust örvæntingarfullar um eftir öryggisvörðum en enginn var í nágrenninu, sagði hún í viðtali við TV2 á sínum tíma. Allt fór úr böndunum þegar stuðningsmenn Brøndby tóku í slönguna á öndunarvélinni og, að sögn Mille Mastrup, kipptu henni úr sambandi. „Þá missti ég andann. Þetta er gjörsamlega fáránlegt og ég segi að ég þurfi súrefni,“ sagði hin 26 ára gamla Mille Mastrup. Ef slangan er ekki tengd við öndunarvélina byrjar hún að pípa eftir 20 sekúndur og þá er það „lífið sem er í húfi“, útskýrði Mille Mastrup. Sem betur fer setti aðstoðarkona hennar slönguna fljótt aftur á sinn stað í öndunarvélinni. En eftir sat Mille Mastrup, sem óttaðist um líf sitt um stund. Þegar nokkrar mínútur voru liðnar af seinni hálfleik yfirgáfu Mille Mastrup og aðstoðarkona hennar Bröndby-leikvanginn.
Danski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira