Óskar Smári eftir sigurinn: „Birna er einn hraðasti leikmaðurinn í hausnum“ 22. júní 2026 21:41 Óskar Smári gengur sáttur frá borði eftir sterkan sigur Stjörnunnar Guðmundur/Vísir Óskar Smári, þjálfari Stjörnunnar, var virkilega ánægður eftir 3-0 sigur liðsins gegn Fram á Samsungvellinum í Garðabæ í Bestu deild kvenna í kvöld. Hann sagði stigin dýrmæt og frammistöðuna góða. „
Það var gott að fá stigin að sjálfsögðu og frammistaðan. Mér fannst 3-0 eiginlega bara sanngjarnt og í rauninni hefði það alveg getað verið stærra,“ sagði Óskar eftir leik. Stjarnan byrjaði leikinn ekki af miklum krafti en vann sig vel inn í hann og tók smám saman völdin. „Við byrjuðum leikinn ekkert frábærlega en við unnum okkur vel inn í þetta. Í seinni hálfleik fannst mér helvíti gaman að horfa á liðið spila fótbolta,“ sagði Óskar. Hann var sérstaklega ánægður með spilamennsku liðsins eftir hlé. „Við vorum mjög öflugar, sérstaklega með boltann, og jafnvægið var mjög gott í liðinu í dag. Ég er virkilega ánægður með stelpurnar.“ Birna Jóhannsdóttir var í aðalhlutverki hjá Stjörnunni og skoraði öll þrjú mörk liðsins. Óskar sagði það ekki hafa verið tilviljun. „Ég held að það séu engar tilviljanir í fótbolta og Birna eiginlega trekkti okkur í gang í dag. Hún setti svolítið tóninn eftir 10–15 mínútur, fór að pressa fastar og var mjög, mjög vel að þessum þremur mörkum komin,“ sagði Óskar. Hann hrósaði einnig undirbúningnum að mörkunum og sagði annað og þriðja markið hafa verið gott dæmi um hvernig Stjarnan vill spila. „Það var frábær undirbúningur á mörkunum öllum þremur. Mér fannst annað og þriðja markið svolítið lýsandi fyrir hvernig við spilum fótbolta og ég er gríðarlega ánægður með þau mörk.“ Óskar lýsti Birnu sem afar klókum og mikilvægum leikmanni í liði Stjörnunnar. „Birna er bara ofboðslega klókur leikmaður. Það fer ekki alltaf mest fyrir henni, hún er ekki að taka tvöföld skæri og fara fram hjá tveimur leikmönnum. En vá hvað hún er mikilvæg í okkar leik.“ Hann sagði styrkleika hennar ekki síst felast í leikskilningi og vinnusemi. „Hún er ofboðslega klók, hún er ósérhlífin. Hún er ekki fljótust í löppunum en hún er einn hraðasti leikmaðurinn í hausnum.“ Óskar sagði Birnu eiga það skilið að fá athyglina eftir frammistöðuna í kvöld. „Birna lætur lítið fyrir sér fara og kannski er kominn tími á að stela svona fyrirsögnum, því hún á það skilið. Hún er ofboðslega mikilvæg og í dag var hún sú sem rak endahnútinn á sóknirnar.“ Stjarnan hefði að mati Óskars getað skorað fleiri mörk en hann var fyrst og fremst stoltur af frammistöðunni. „Við fengum fleiri færi til að skora fleiri mörk og spiluðum vel í dag. Ég var bara mjög ánægður og stoltur af liðinu og hvernig þær spiluðu þennan leik,“ sagði Óskar að lokum.
Besta deild kvenna Stjarnan Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira