Ronaldinho tók skóna af hillunni eftir níu ár: „Við munum gera eitthvað sérstakt“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júní 2026 14:33 Endurkoma Ronaldinho þýðir að margir munu fylgjast með Ravenna í haust. Getty/Darrian Traynor Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Ronaldinho hefur nú tjáð sig opinberlega um þá ákvörðun að taka fótboltaskóna af hillunni eftir níu ára bið til að ganga til liðs við Ravenna í C-deildinni. „
Ég er ánægður með að fólk sé að tala um þetta,“ sagði Ronaldinho. Hann er 46 ára gamall og lék síðast í Indlandi árið 2017. „Fólk hefur líka verið að spyrja mig út í þetta allan tímann. Vinir mínir, öll fjölskyldan – ‚Er það satt að þú sért að fara að spila aftur?‘ Þannig hlutir,“ sagði Ronaldinho. „En sannleikurinn er sá að þetta er dásamlegt; þetta er frábært fyrir okkur og við munum fara þangað til að gera stórkostlega hluti. Við munum gera eitthvað sérstakt. Það er málið,“ sagði Ronaldinho. As Ronaldinho prepares to lace up his boots again at the age of 46 after signing with Italian side Ravenna FC, the Brazil great hopes to inspire the younger generation to follow their dreams https://t.co/x9QiMM3WI6 pic.twitter.com/cv4XYc3jss— Reuters (@Reuters) June 24, 2026 „Ég get ekki beðið eftir að komast þangað, að kynnast staðnum; öll fjölskyldan mín og ég erum alveg himinlifandi. Og ég get ekki beðið eftir að komast þangað,“ sagði Ronaldinho. „Þetta er eitthvað stórkostlegt sem er að gerast og þetta mun vekja athygli allra í heiminum. Ég held að það verði mikil veisla þegar hann spilar í alvöru,“ sagði Ignazio Cipriani, eigandi Ravenna. Athugasemd: Seinna kom í ljós að Ronaldinho er ekki að fara að spila í C-deildinni heldur einungis sýningarleik með Ravenna. Ronaldinho er almennt talinn einn af bestu leikmönnum allra tíma. Hann vann tvisvar verðlaunin Knattspyrnumaður ársins hjá FIFA og einn Gullknött (Ballon d'Or). Hann er eini leikmaðurinn sem hefur unnið allt eftirfarandi: heimsmeistaratitil, Suður-Ameríkukeppnina (Copa América), Álfukeppnina (Confederations Cup), Meistaradeildina, Suður-Ameríkukeppni félagsliða (Copa Libertadores) og Gullknöttinn. Ronaldinho var goðsögn í íþróttinni á heimsvísu og var þekktur fyrir sendingar sínar, nákvæmni í aukaspyrnum, brellur, gabbhreyfingar, sendingar án þess að horfa og hjólhestaspyrnur, auk hæfileika sinna til að skora og skapa mörk. Hann var einnig þekktur undir gælunafninu „O Bruxo“ („Galdramaðurinn“) og var á ferli sínum einn verðmætasti íþróttamaður heims. Ronaldinho lék alls 97 landsleiki fyrir Brasilíu og skoraði í þeim 33 mörk. Hann var lykilmaður í síðasta heimsmeistaraliði Brassa árið 2002. Ronaldinho is back in club football 😍🇧🇷The Brazilian legend has joined Italian Serie C side Ravenna FC at the age of 46. pic.twitter.com/JgY2bddV7R— Sky Sports (@SkySports) June 20, 2026
Ítalski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira