„Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 25. júní 2026 22:30 Abdias Yosue Santiago Rosales, 32 ára frá Venesúela. Ap/Vísir/sigurjón Óttast er að tugir þúsunda manna séu látnir eftir öfluga jarðskjálfta í Venesúela. Umfangsmikilar björgunaraðgerðir standa nú yfir og hafa hundruðir bygginga þegar hrunið. Maður frá Venesúela sem býr á Íslandi segist ekki hafa fest svefn í alla nótt vegna hamfaranna.
Tveir stærðarinnar jarðskjálftar gengu yfir landið klukkan sex í gærkvöldi, miðvikudaginn 24. júní, að staðartíma en óttast er að tugir þúsunda manna hafi farist í skjálftunum. Eins og er hafa ríflega hundrað og sextíu dauðsföll verið staðfest en tæplega þúsund eru staðfest slasaðir. Þrjátíu þúsund manns er enn leitað. Um er að ræða kraftmestu jarðhræringar í Venesúela frá árinu 1900. Fyrri skjálftinn mældist 7,2 að stærð en sá seinni 7,5 sem reið yfir mínútu seinna. Upptök skjálftans voru vestan við höfuðborgina Caracas. Neyðastigi lýst yfir í landinu Viðbragðsaðilar og björgunarmenn hafa leitað í rústum bygginga í höfuðborginni og í héraðinu La Guaira sem talið er að hafi orðið verst úti en þar hafa fleiri en hundrað byggingar hrunið. Skemmdir urðu einnig á alþjóðaflugvelli í grenndinni. Sérhæfðar björgunarsveitir frá ýmsum þjóðum hafa verið kallaðar til og eru margar þeirra á leið á vettvang en neyðarstigi var lýst yfir í landinu í gærkvöldi, miðvikudaginn 24. júní, og segir Delcy Rodrigues, forseti Venesúela, að um áfall fyrir þjóðina sé að ræða. „Tugir bygginga eru rústir einar. Nú stendur yfir gífurlega umfangsmikil leit til að bjarga þeim lífum sem Guð leyfir okkur að varðveita. Um sannkallaðan harmleik er að ræða,“ sagði hún. Óttast um ástvini sína Abdias Yosue Santiago Rosales er frá Venesúela og hefur búið hér á landi í þrjú ár. Hann segir hamfarirnar mikið áfall. „Þetta var eins og að vakna við vondan draum. Ég horfði á fréttirnar og myndskeiðin voru rosaleg. Þetta var eins og að horfa á hamfaramynd um heimsendi. Hvað er að gerast í landinu mínu? Ég svaf ekki neitt í nótt, það var svo erfitt.“ Fjölmargir af vinum hans og fjölskyldu voru staddir í höfuðborginni þegar skjálftarnir gengu yfir. „Margir vinir mínir eru nú án heimilis. Ég er búinn að tala við næstum alla og þau eru í lagi. Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar. Þau eru að reyna að bjarga honum. Það er svo erfitt að vera hér og geta ekki hjálpað. Þau sögðu við mig: Þetta er eins og heimsendir. Það var fullt af fólki úti um allt hlaupandi í allar áttir og grátandi.“ Upptök skjálftanna.
Venesúela Náttúruhamfarir Eldgos og jarðhræringar Jarðskjálfti í Venesúela 2026 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira