Hallgrímur eftir fimmta tapið í röð: „Ég þarf að gera betur“ Gunnar Egill Daníelsson skrifar 28. júní 2026 20:24 Hallgrímur Jónasson hefur áhyggjur af stöðu KA. vísir/Anton Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, viðurkenndi að lærisveinar sínir hafi ekki verið nægilega góðir í fyrri hálfleik þegar liðið tapaði 3-1 fyrir Stjörnunni í 12. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Samsungvellinum í Garðabæ í kvöld. „
Mér fannst fyrri hálfleikurinn ekki vera nógu góður. Mér fannst við vera of langt frá þeim og þegar við komumst í þau svæði sem við vildum komast í í fyrri hálfleik þá einhvern veginn náðum við ekki að koma boltanum inn á teig. Við vorum oft komnir í góðar stöður á síðasta þriðjungi en fyrirgjafirnar fóru á bak við markið eða í varnarmann eða við missum boltann í horn. Þetta var kannski smá sjálfstraustsleysi og við vorum sanngjarnt undir. Síðan fannst mér seinni hálfleikur flottur, við sköpum færi og hefðum getað skorað fleiri mörk. Þriðja markið kemur á 95. mínútu þegar við erum komnir með alla fram þannig að það skiptir ekki öllu máli. En þetta svíður fyrir okkur öll sem erum KA-fólk því við erum í mikilli brekku. Það er ekkert launungarmál og við höfum verið þarna áður því miður, en höfum sem betur fer komið okkur upp úr því og það er það sem við ætlum að gera. Við tókum gott samtal inni í klefa ég og strákarnir. Ég er ánægður að sjá að menn eru að leggja sig fram, ég er ánægður að sjá að þetta svíður. Menn eru ekki ánægðir og eru niðurlútir inni í klefa. Þetta er ekkert flókið. Það eru bara við sem getum breytt þessu og það er það sem við ætlum að gera,“ sagði Hallgrímur í samtali við Sýn Sport eftir leikinn. Þeir eru búnir að vera í veseni Eftir að hafa verið 2-0 undir í hálfleik mætti KA öflugara til leiks í síðari hálfleik og minnkaði fljótlega muninn í eitt mark áður en Stjarnan gerði út um leikinn í blálokin. „Við töluðum aðeins um pressuna og hvaða svæði við gætum farið í. Að halda áfram að trúa á þetta og við vissum að ef við gætum komið með fyrsta mark hálfleiksins þá yrði þetta leikur. Þeir eru búnir að vera í veseni og missa niður leiki. Við skorum fyrsta markið og fáum nokkra góða möguleika en því miður náðum við ekki að skora annað markið sem hefði hleypt þessu mikið upp,“ sagði hann um hverju KA hafi breytt í leikhléi. KA hefur nú tapað fimm deildarleikjum í röð. Þrátt fyrir það telur Hallgrímur enga örvæntingu hafa gripið um sig innan leikmannahópsins. „Nei, ekki örvænting en við erum ekki ánægðir. Við ætlum sko ekki að vera þarna. Í byrjun móts vorum við mjög pottþéttir til baka og fengum ekki mörk á okkur en svo erum við búnir að lenda í smá áföllum og höfum ekki náð að leysa það nógu vel. Við fáum of mörg mörk á okkur og þurfum að finna lausnir við því. Það er ekki flókið. Ég þarf að gera betur, strákarnir þurfa að halda haus og leggja sig fram og þannig snúum við hlutunum við. Við þjálfarar þurfum að leggja vinnu í þetta dag og nótt við að finna lausnir og ég ætla mér að gera það.“
Íslenski boltinn Besta deild karla KA Mest lesið Blaðamannafundi Heimis frestað og von á yfirlýsingu Fótbolti Ringulreið hjá Heimi og leikur við Ísrael í uppnámi Fótbolti „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Allt vitlaust á landsliðsæfingu þegar ungir mættu gömlum Sport Sjáðu stórkostlega aukaspyrnu Daníels Tristans gegn Frökkum Fótbolti Ætlar ekki sömu leið og Óskar Hrafn: „Væri óskandi“ Fótbolti Internetið gerir grín að Caleb Williams Sport „Höfum talað digurbarkalega um það“ Fótbolti Fleiri fréttir Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ Uppgjörið: Keflavík - Fram 2-2 | Stig sem gerir ekki mikið fyrir bæði lið Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 4-1 | Skítlétt á Skaganum Uppgjörið: FH - Stjarnan 5-2 | Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Uppgjörið: ÍBV - Valur 1-1 | Grátlegt jafntefli hjá Eyjamönnum Blikakonur með í tölvuleik og brjóta blað „Ég hef ekki séð svona áður hjá neinum leikmanni“ Skolað í burtu úr Vesturbæ en skáluðu hjá Audda Blö Sjá meira