Hver vill borða brauðið? Jón Óskar Hinriksson skrifar 30. júní 2026 07:02 Á hverjum degi skilar fólk um allt land um 600 þúsund tómum flöskum og dósum til endurvinnslu og fær greitt skilagjald. Á síðasta ári skiluðu um 90% drykkjarumbúða sér aftur inn í kerfið og um 224 milljónir eininga fóru í gegnum Endurvinnsluna. Kerfið okkar er öflugt og hefur skilað mjög góðum árangri á bæði innlendum og erlendum mælikvarða. Það er eitthvað sem við Íslendingar megum vera afar stolt af. Því kann það að skjóta skökku við að heyra að skilagjaldakerfið okkar sé í vandræðum og að kerfislægur galli sé að valda Endurvinnslunni miklu fjárhagslegu tjóni. Rúmlega 100 milljóna kerfisgalli Skilakerfið er í grunninn einfalt og byggir á lögum nr. 52/1989: Framleiðendur og innflytjendur greiða skilagjald af hverri flösku og dós til Skattsins. Skatturinn kemur skilagjaldinu áfram til Endurvinnslunnar. Endurvinnslan greiðir almenningi skilagjaldið þegar flöskum og dósum er skilað. Kerfið gekk nokkuð snuðrulaust fyrstu áratugi rekstrar en undanfarin fjögur ár hefur borið á því að lögbundin skila- og umsýslugjöld skili sér ekki að fullu. Það sjáum við á því að misræmi hefur myndast á milli þess fjölda umbúða sem berst til Endurvinnslunnar og þeirra gjalda sem berast inn í kerfið. Beint fjárhagslegt tjón Endurvinnslunnar vegna þessa er metið á rúmar 100 milljónir króna á síðustu fjórum árum og fer vaxandi. Tjónið lendir á rekstri Endurvinnslunnar og mun, ef ekkert er að gert, gera rekstur kerfisins ósjálfbæran til lengri tíma. Þetta er ekki smávægilegt bókhaldsfrávik heldur kerfisgalli sem grefur undan jafnræði, skilvirkni og trausti. Þörf á skilvirku eftirliti Skatturinn telur að innheimta í skilakerfinu sé um 99%. Með öðrum orðum virðast þau skilagjöld sem berast Skattinum vera í samræmi við þær skilagjaldsskýrslur sem framleiðendur skila sjálfir inn. Vandinn er hins vegar sá að ekki liggur fyrir nægilega skýr mynd af því hvort allir skili slíkum skýrslum eða hvort þær endurspegli raunverulegt magn umbúða á markaði. Eftirlitið virðist vera í skötulíki sem er grátlegt þar sem það bitnar á öllum landsmönnum. Skatturinn hefur borið fyrir sig þagnarskyldu og afhendir Endurvinnslunni ekki upplýsingar um skil framleiðenda. Það kann að vera að slík þagnarskylda gildi en þá verður virkt opinbert eftirlit þeim mun mikilvægara. Ef Endurvinnslan hefur enga sýn á það hvaða gjöld hafa skilað sér, hvaða kröfur kunna að tapast eða hvort skilaskýrslur séu í samræmi við raunverulegt magn umbúða á markaði, verður mjög erfitt að reka kerfið af þeirri nákvæmni sem nauðsynleg er. Ítrekaðar beiðnir um úrbætur Við höfum ítrekað bent á þetta við Skattinn, fjármála- og efnahagsráðuneytið og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Við höfum sent bréf, fundað með viðeigandi aðilum, leitað til umboðsmanns Alþingis og unnið með Samtökum verslunar og þjónustu að tillögum um úrbætur á innheimtu, eftirliti og viðurlögum. Svörin frá hinu opinbera hafa verið fá, viðbrögðin lítil og áfram lekur úr kerfinu. Fleiri milljónir í hverjum mánuði. Það þarf skýrari ábyrgð, virkara eftirlit og raunhæf úrræði þegar lögbundin gjöld skila sér ekki. Skatturinn þarf að hafa burði og skýrt umboð til að fylgja innheimtu eftir. Stjórnvöld þurfa að tryggja að viðurlög séu til staðar og virkjuð þegar ástæða er til, hvort sem um er að ræða álag, sektir eða önnur úrræði sem lög heimila. Reglur gildi jafnt fyrir alla Ef við viljum halda áfram að byggja upp skilvirkt, hagkvæmt og umhverfisvænt endurvinnslukerfi þurfum við að laga þessa annmarka. Það þarf ekki að umbylta kerfinu. Það þarf að loka gatinu svo enginn geti farið á svig við reglurnar. Reglur eiga að gilda jafnt fyrir alla. Þeir sem fara að lögum eiga ekki að borga brúsann fyrir þá sem gera það ekki. Skilakerfið byggir á trausti. En traust dugar ekki eitt og sér. Við innheimtu á lögbundnum gjöldum þarf skýra ábyrgð, virkt eftirlit og raunverulegar afleiðingar þegar gjöldin skila sér ekki. Ef ekkert verður aðhafst þá endar þetta eins og í Litlu gulu hænunni þar sem allir vilja borða brauðið en enginn nennir að leggja til vinnuna við að láta það verða að veruleika og þá er þessu sjálfhætt. Varla er það ásættanleg niðurstaða fyrir nokkurn mann. Höfundur er framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Mest lesið Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Referendum: The Status Quo is Path Dependent Smári McCarthy Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir Skoðun Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Referendum: What Is Path Dependence? Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað var afaðlagað? Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Fullveldi - ættaróðal eða verkfæri sjálfstæðrar þjóðar? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Referendum: The Status Quo is Path Dependent Smári McCarthy skrifar Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Gylliboðin sem ekki standast Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Er ekki alltaf brjálað að gera? Sigríður Indriðadóttir skrifar Skoðun Spliff, Donk & Gengja á Alþingi Benedikt V Warén skrifar Skoðun Bannmenn og bruggarar Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson skrifar Skoðun Lærum lýðræði Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Referendum: What Is Path Dependence? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson skrifar Skoðun ESB-aðild eykur áhrif smáríkja. Reynsla Íra er mjög jákvæð Dominic Scott skrifar Skoðun Hvaða Evrópusamband erum við að kjósa um? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hefur einhver trú á topplistum? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Seðlabankastjóri og stríðsöxin Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland þarf raunhæfar lausnir — ekki óútskýrðar stærðir og óraunhæfar sviðsmyndir Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason skrifar Skoðun Vaxtaþrælarnir og hinir Ingólfur Sverrisson skrifar Sjá meira
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar
Skoðun Ísland þarf raunhæfar lausnir — ekki óútskýrðar stærðir og óraunhæfar sviðsmyndir Eggert Guðmundsson skrifar