Már getur andað aftur: „Ég bara man eiginlega ekki eftir þessari tilfinningu“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2026 08:33 Már Gunnarsson keppti í mörg ár án þess að geta andað almennilega með nefinu. Nú er öldin önnur eftir að nefaðgerðin heppnaðist vel. Getty/Dean Mouhtaropoulos Sundmaðurinn Már Gunnarsson opnaði sig um nefaðgerðina sína í síðustu viku og nú hefur hann fært fylgjendum sínum góðar fréttir af sér. Læknirinn hefur nú fjarlægt rörin úr nefinu hans og áhrifin létu ekki á sér standa. „
Þó að ég eigi enn eftir að jafna mig á bólgum og svoleiðis eftir aðgerðina þá á ég mun auðveldara með öndun. Ég held að þetta muni létta mér lífið verulega. Þarf bara að passa að reka nebbann ekki á vegg í framtíðinni,“ segir á samfélagmiðlum Más og þar sést hann líka í mynd og ræða þessar góðu fréttir. Már hafði sett inn stutt myndband strax eftir aðgerðina en núna var ástæða til að segja betur frá gangi mála. „Þá er Már búinn í nefaðgerð og ég var að koma frá lækninum. Hann fjarlægði rörin sem voru sett hérna inn í andlitið á mér í síðustu viku. Þessi rör voru ekkert smá, því þau voru alveg held ég um átta sentímetra löng,“ sagði Már. „Þannig að það er mikill léttir að vera búinn með þetta. Ég get andað með nefinu og þetta er ótrúleg tilfinning. Ég bara man eiginlega ekki eftir þessari tilfinningu,“ sagði Már og fagnaði með því að draga íslenska fánann að húni. Fyrir tíu árum lenti Már í því óhappi þegar hann var að æfa flugsundsspretti með froskalöppum og lenti beint á bakkanum með andlitið. Síðan þá hafði hann ekki getað andað almennilega með nefinu og hafði áður farið í aðgerð sem tókst ekki. Nú virðist þetta hafa gengið miklu betur og þetta ætti að vera allt annað líf fyrir þennan frábæra sundmann. View this post on Instagram A post shared by Már (@mar_gunnarsson)
Sund Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Dregur sig úr landsliðshópnum Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ Höfðingjarnir á mikilli siglingu Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Gylfi með til Eistlands Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Dagskráin í dag: Allt sem þú þarft að vita fyrir ballið í Bónus-deildinni Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Dýrmætur sigur HK-inga Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Tapaði titlinum í lokabeygjunni „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Sjá meira