Bjarki Már til franska stórveldisins Sindri Sverrisson skrifar 6. júlí 2026 09:38 Bjarki Már Elísson spilar með frönsku meisturunum á næstu leiktíð. Getty/Sina Schuldt Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson er genginn í raðir franska stórliðsins PSG og hefur samið við félagið til eins árs.
Bjarki var laus og liðugur eftir að samningur hans við Veszprém rann út í sumar en hann hefur nú fundið sér nýtt félag og það eru sjálfir Frakklandsmeistarar PSG. View this post on Instagram A post shared by Paris Saint-Germain Handball (@psghandofficiel) Félagið leitaði til Bjarka vegna meiðsla franska landsliðshornamannsins Mathieu Grébille sem er með slitið krossband í hné. Bjarki, sem er 36 ára, mun því leika í frönsku 1. deildinni á næstu leiktíð, sem og í Meistaradeild Evrópu líkt og hann gerði með Veszprém. Bjarki lék með Selfossi og HK á Íslandi áður en hann hélt til Þýskalands árið 2013 og spilaði þar í landi með Eisenach, Füchse Berlín og Lemgo. Hann var svo hjá Veszprém í fjögur ár en kvaddi félagið í vor sem ungverskur meistari. „Það er mér heiður og stolt að vera hér. Ég get ekki beðið eftir að byrja að spila í nýju litunum mínum. Ég heillaðist strax af verkefni félagsins þegar mér var sagt að þeir hefðu áhuga á mér. Paris Saint-Germain er frábært félag með ríka sögu og ég er mjög ánægður með að vera núna hluti af því,“ segir Bjarki á heimasíðu PSG. „Líður eins og ég sé 26 ára“ „Ég hef átt langan og farsælan feril en mér líður samt eins og ég sé 26 ára, ekki 36. Það var draumur minn að spila handbolta sem atvinnumaður. Ég vona að ég sé enn langt frá endalokunum og að ég geti spilað í nokkur tímabil í viðbót,“ segir Bjarki sem bíður spenntur eftir að hefja leik með PSG og spila í Coubertin-höllinni. „Heiðarlega sagt hefur mér alltaf líkað við merki og búning Paris Saint-Germain. Ég hef spilað á móti ykkur nokkrum sinnum síðan ég kom til Veszprém árið 2022 og það hafa alltaf verið frábærir bardagar. Andrúmsloftið í hvert skipti sem ég hef spilað í Coubertin hefur alltaf verið einstakt. Það var erfitt að ná sigri hér. Stuðningsmennirnir eru háværir frá upphafi til enda og ég get ekki beðið eftir að spila fyrir framan þá,“ segir Bjarki.
Franski handboltinn Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Lokadagur heimsleikanna í CrossFit: Í hvaða sætum enda Íslendingarnir? Sport Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira