Handbolti

Upp­lifun að koma á svæðið og skrifa undir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bjarki Már verður leikmaður PSG á næsta tímabili og mun verða búsettur í París. Handboltahöllin er á sama svæði og Parc de Princes, heimavelli knattspyrnuliðs PSG:
Bjarki Már verður leikmaður PSG á næsta tímabili og mun verða búsettur í París. Handboltahöllin er á sama svæði og Parc de Princes, heimavelli knattspyrnuliðs PSG: Vísir/sigurjón/getty

Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson er genginn í raðir franska stórliðsins PSG og hefur samið við félagið til eins árs. Hann vill vera áfram í fremstu röð og er ekkert á leiðinni að hætta í boltanum.

Paris Saint Germain leitaði til Bjarka vegna meiðsla franska landsliðshornamannsins Mathieu Grébille sem er með slitið krossband í hné. Bjarki, sem er 36 ára, mun því leika í frönsku 1. deildinni á næstu leiktíð, sem og í Meistaradeild Evrópu líkt og hann gerði með Veszprém sem hann lék með síðustu fjögur tímabil.

„Ég var náttúrulega bara að renna út af samningi hjá Veszprém og var svolítið bara ásamt umboðsmanni að leita að liði. Svo sem sagt meiðist einn leikmaður hjá þeim og þeir byrja að leita. Þegar þetta kom upp þá var ég náttúrulega bara spenntastur fyrir þessu og sem betur fer gekk þetta í gegn. Ég hef náttúrulega bara bullandi trú á sjálfum mér og hef bara trú á því að ef ég bara stend mína plikt þá fái ég að spila helling af leikjum og helling af mínútum,“ segir Bjarki í Sportpakkanum á Sýn í gærkvöldi.

Hann segir að PSG sé án efa stærsta félagið sem hann hafi spilað með.

„Brandið og lógóið og það var náttúrulega alveg upplifun að koma þarna og skrifa undir. Þetta er náttúrulega allt undir sama hatti og bara að koma inn á skrifstofuna og sjá fótboltavöllinn og allt þetta í kring er náttúrulega rosalegt. Veszprém er kannski betra handboltalið í dag en það má kannski má færa rök fyrir því að klúbburinn sjálfur sé sá stærsti.“

Bjarki er hvergi nærri hættur í boltanum.

„Eins og mér líður í dag og það er enn þá mikill eldmóður og skrokkurinn og fjölskyldan að spila með þá sé ég ekkert fram á að hætta allavega í bráð.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×