Óðinn óstöðvandi í stórsigri Valur Páll Eiríksson skrifar 11. júlí 2026 15:49 Mosfellingar unnu öruggan sigur á Húsavík. Afturelding treystir stöðu sína á toppi Lengjudeildar karla í fótbolta þökk sé stórsigri á Völsungi á Húsavík. Óðinn Bjarkason fór fyrir Mosfellingum.
Óðinn Bjarkason kom Aftureldingu í forystu eftir ellefu mínútna leik og Bjartur Bjarmi Barkarson tvöfaldaði forystuna átta mínútum síðar. Reynsluboltinn Elfar Árni Aðalsteinsson, sem er jafnframt aðstoðarþjálfari Völsungs, minnkaði muninn eftir 25 mínútna leik en sjö mínútum síðar var staðan orðin 4-1 þökk sé tveimur mörkum til frá Óðni Bjarkasyni sem fullkomnaði þrennu sína á 32. mínútu. Axel Óskar Andrésson skoraði fimmta mark Mosfellinga snemma í síðari hálfleik og þá átti hann hlut í því að Elfar Árni Aðalsteinsson fékk að líta rautt spjald þegar tuttugu mínútur lifðu leiks. Elfar Árni reyndi við hjólhestaspyrnu en Axel Óskar komst á undan í boltann. Tilraunin fór ekki betur en svo að Elfar sparkaði í bringu Axels, fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt. Stuttu eftir það kom Róbert Agnar Daðason inn sem varamaður og hann skoraði sjötta mark Aftureldingar innan við mínútu eftir að hann kom inn af bekknum. Leiknum lauk því með 6-1 sigri gestanna. Um er að ræða fjórða sigur Aftureldingar í röð í deildinni og eftir hann er liðið með 28 stig eftir 13 leiki á toppi deildarinnar. Þróttur er næst á eftir með 24 stig, líkt og Fylkir, en Árbæingar eiga leik inni. Völsungur er með átta stig í næst neðsta sæti, því ellefta, jafnt botnliði Ægis að stigum, en aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti. Upplýsingar um markaskorara leiksins eru fengnar af Fótbolti.net.
Afturelding Lengjudeild karla Íslenski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira