„Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Sindri Sverrisson skrifar 11. júlí 2026 22:01 Ída Marín Hermannsdóttir og stöllur í FH fögnuðu sjö mörkum gegn Þrótti og þar af skoraði Ída Marín fimm. vísir/Anton Ída Marín Hermannsdóttir átti sannkallaðan stórleik og skoraði fimm mörk fyrir FH í mögnuðum 7-3 sigri gegn Þrótti í Bestu deildinni. Helena Ólafsdóttir segir Ídu núna geisla af sjálfstrausti hjá FH eftir að hafa litið út fyrir að líða illa á tíma sínum með Val. „
Þetta er ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg og eigi meira inni,“ sagði Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir en þær Helena voru sérfræðingar Jóhanns Fjalars Skaptasonar í Bestu mörkunum í gærkvöld, á Sýn Sport Ísland. Brot úr þættinum má sjá hér að neðan. Klippa: Bestu mörkin: Umræða um Ídu „Mér finnst þetta frábær framherjamörk sem hún er að skora. Hún er með auga fyrir þessu og langar að skora,“ sagði Helena. Ída hefur slegið í gegn á þessu ári og frábær frammistaða hennar í byrjunarliði Íslands gegn Spáni í vetur í byrjun mars hefur eflaust eflt sjálfstraustið. „Við ræddum hana svolítið í vor, að þetta væri leikmaður sem við gætum séð eiga stjörnutímabil. Þetta er einn af þessum leikjum sem sýna það, og að hún fer væntanlega erlendis í glugganum núna eða eftir tímabilið,“ bætti Helena við. Hún rifjaði upp að hafa fundist Ída geisla af sjálfstrausti þegar hún lék með Fylki á sínum tíma en að hún hefði hins vegar ekki náð að blómstra með Val í kjölfarið. „Mér fannst þessi tími hennar í Val einkennast af sjálfstraustsleysi. Við sjáum það á öllum aðgerðum. Þá var ekki þessi áræðni í henni. Ég veit að hún var yngri en mér er alveg sama. Mér fannst líkamstjáningin segja mér að henni leið ekkert sérstaklega vel. Um leið og hún skipti yfir í FH 2024 þá sá ég að hún gæti þetta. Þú þarft að finna traust, að þú megir gera hluti,“ sagði Helena og hrósaði Guðna Eiríkssyni, þjálfara FH, í þessum efnum. „Mér fannst hún oft í Val ekki notuð eins og nýttist henni best. Hún var kannski meira í varnarsinnuðu hlutverki á miðjunni, og var aðeins villtari,“ sagði Bára en umræðuna í heild má sjá hér að ofan.
Besta deild kvenna FH Bestu mörkin Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira