Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Tómas Arnar Þorláksson skrifar 15. júlí 2026 12:33 Frá Seyðisfirði þar sem sólin leikur við fólk. vísir/vilhelm Það má segja að veðurgæðum sé verulega misskipt eftir landshlutum á þessum hásumarsdegi. Enda tóku gular veðurviðvaranir gildi um norðvestanvert landið í morgun á meðan skærgul sólin leikur við landann á Austurlandi með tilheyrandi blíðu og hita. Reiknað er með að hiti á landinu verði frá ellefu stigum upp í 28 stig í dag. Líkur á hitameti fara hverfandi með deginum. Teitur Arason, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir þráláta hæð yfir Bretlandi og nokkuð lágan þrýsting með suðausturströnd Grænlands útskýra veðurfarið hér á landi. „Þessi hæð við Bretland, hún hefur beint til okkar mjög hlýjum loftmassa úr suðri og suðvestri, beint honum yfir landið en þetta loft er mjög rakt líka, þannig að áveðurs hefur verið vætusamt með köflum og skýjað.“ Hvernig hefur veðrið verið hjá þér í dag? Sendu okkur endilega myndir og myndbönd af blíðviðri eða slagviðri og öllu þar á milli á tomasat@syn.is eða ritstjorn@visir.is. Vindur mælist 13 til 20 metrar á sekúndu víða á norðvesturhluta landsins og gætu hviður náð allt að 30 metrum á sekúndu. Teitur segir því varasamt að vera á ferðinni á stórum ökutækjum. „Þetta eru svona vindstrengir sem eru varasamir, sérstaklega fyrir þessi farartæki sem eru á ferðinni á sumrin sem eru viðkvæm fyrir vindum. Hann er mestur þarna í norðvesturfjórðungi landsins. Þar eru vindstrengir verstir í dag og þess vegna gáfum við út gular viðvaranir.“ Vonarglæta á föstudag Mikill hiti ræður ríkjum á Austurlandi um þessar mundir en von er á háum skýjabakka þar eftir hádegi. „Þessi tvö atriði, að sólin minnkar og hlýjasta loftið er að fara hjá, dregur úr líkunum á að íslandsmet í hita falli. Það telst ólíklegt þó að það sé smávegis möguleiki á því.“ Hann segir örlitla vonarglætu vera til staðar fyrir borgarbúa á föstudaginn en að öðru leyti sé ekki reiknað með betri tíð í bráð. „Austanvert landið verður áfram í mjög góðu veðri og þessi suðvestanátt og hæðin virðast ætla að halda velli um helgina og í byrjun næstu viku. Íbúar við vesturströndina geta huggað sig við að það er möguleiki á að birti upp dagpart á föstudaginn. En að öðru leyti næstu daga verður áfram skýjað og þar með talið á höfuðborgarsvæðinu. Það er vonarglæta á föstudaginn en annars því miður lítil von á næstunni.“ Bongóblíða og iðandi mannlíf á Seyðisfirði Hitinn á Seyðisfirði mældist 25 gráður í nótt. Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri Haföldunnar, þar í bæ ræddi við fréttastofu þegar hiti þar hafði náð um 28 gráðum en hún segir bæinn iða af lífi. „Þetta er sannkallað bongó eins og við köllum það. Orðið bongóblíða var einmitt fundið upp á Seyðisfirði. Ég er svona farin að fá símtöl frá vinum með FOMO-ið sem eru farnir að boða komu sína og spyrja hvort það sé eitthvað laust og hægt að halla. Svo er náttúrulega bara skemmtiferðaskipatraffík og iðandi mannlíf, það eru tvö hérna í höfninni á Seyðisfirði í dag.“ Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri Haföldunnar.aðsend Og er íbúafjöldinn búinn að þrefaldast við það? „Ég held að hann sé alveg að fimmfaldast með öllum hinum ferðamönnunum.“ Veður Múlaþing Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira
Reiknað er með að hiti á landinu verði frá ellefu stigum upp í 28 stig í dag. Líkur á hitameti fara hverfandi með deginum. Teitur Arason, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir þráláta hæð yfir Bretlandi og nokkuð lágan þrýsting með suðausturströnd Grænlands útskýra veðurfarið hér á landi. „Þessi hæð við Bretland, hún hefur beint til okkar mjög hlýjum loftmassa úr suðri og suðvestri, beint honum yfir landið en þetta loft er mjög rakt líka, þannig að áveðurs hefur verið vætusamt með köflum og skýjað.“ Hvernig hefur veðrið verið hjá þér í dag? Sendu okkur endilega myndir og myndbönd af blíðviðri eða slagviðri og öllu þar á milli á tomasat@syn.is eða ritstjorn@visir.is. Vindur mælist 13 til 20 metrar á sekúndu víða á norðvesturhluta landsins og gætu hviður náð allt að 30 metrum á sekúndu. Teitur segir því varasamt að vera á ferðinni á stórum ökutækjum. „Þetta eru svona vindstrengir sem eru varasamir, sérstaklega fyrir þessi farartæki sem eru á ferðinni á sumrin sem eru viðkvæm fyrir vindum. Hann er mestur þarna í norðvesturfjórðungi landsins. Þar eru vindstrengir verstir í dag og þess vegna gáfum við út gular viðvaranir.“ Vonarglæta á föstudag Mikill hiti ræður ríkjum á Austurlandi um þessar mundir en von er á háum skýjabakka þar eftir hádegi. „Þessi tvö atriði, að sólin minnkar og hlýjasta loftið er að fara hjá, dregur úr líkunum á að íslandsmet í hita falli. Það telst ólíklegt þó að það sé smávegis möguleiki á því.“ Hann segir örlitla vonarglætu vera til staðar fyrir borgarbúa á föstudaginn en að öðru leyti sé ekki reiknað með betri tíð í bráð. „Austanvert landið verður áfram í mjög góðu veðri og þessi suðvestanátt og hæðin virðast ætla að halda velli um helgina og í byrjun næstu viku. Íbúar við vesturströndina geta huggað sig við að það er möguleiki á að birti upp dagpart á föstudaginn. En að öðru leyti næstu daga verður áfram skýjað og þar með talið á höfuðborgarsvæðinu. Það er vonarglæta á föstudaginn en annars því miður lítil von á næstunni.“ Bongóblíða og iðandi mannlíf á Seyðisfirði Hitinn á Seyðisfirði mældist 25 gráður í nótt. Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri Haföldunnar, þar í bæ ræddi við fréttastofu þegar hiti þar hafði náð um 28 gráðum en hún segir bæinn iða af lífi. „Þetta er sannkallað bongó eins og við köllum það. Orðið bongóblíða var einmitt fundið upp á Seyðisfirði. Ég er svona farin að fá símtöl frá vinum með FOMO-ið sem eru farnir að boða komu sína og spyrja hvort það sé eitthvað laust og hægt að halla. Svo er náttúrulega bara skemmtiferðaskipatraffík og iðandi mannlíf, það eru tvö hérna í höfninni á Seyðisfirði í dag.“ Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri Haföldunnar.aðsend Og er íbúafjöldinn búinn að þrefaldast við það? „Ég held að hann sé alveg að fimmfaldast með öllum hinum ferðamönnunum.“
Hvernig hefur veðrið verið hjá þér í dag? Sendu okkur endilega myndir og myndbönd af blíðviðri eða slagviðri og öllu þar á milli á tomasat@syn.is eða ritstjorn@visir.is.
Veður Múlaþing Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira