Sex létust í árásum Rússa í nótt Áróra L Davíðsdóttir skrifar 15. júlí 2026 13:49 Héraðsstjóri Odesa sakar Rússa um að hafa beint árásum sínum að saklausum borgurum í hafnarborginni. Getty Sex létust í Úkraínu í kjölfar árása Rússlands á hafnarborgina Odesa við Svartahaf og borgina Sumy í austurhluta landsins í nótt.
Í umfjöllun BBC er haft eftir Oleh Kiper, héraðsstjóri Odesa, sem sagði að Rússar hefðu háð „gríðarlega“ dróna- og flugskeytaárás á héraðið fimmta daginn í röð þar sem þrír hefðu látist. Hann sakaði Rússa um að hafa beint árásum sínum að saklausum borgurum en flugskeyti hæfði fjölbýlishús. Aðrir þrír hafi látið lífið í árás á Sumy í austurhluta Úkraínu og sautján særst. Rússneska varnarmálaráðuneytið staðfesti að ráðist hefði verið á Odesa en segir að vísvitandi hafi spjótum verið beint að hafnarmannvirkjum sem „notuð eru til að afferma jarðolíu, olíu og smurefni“. Árásir Rússa undanfarna daga hafi beinst að höfnum Úkraínu við Svartahaf á Odesa-svæðinu en þar í gegn fari stór hluti vöruflutninga Úkraínu. Úkraínski herinn hafi hæft tuttugu rússnesk skip á Svartahafi í nótt, þar af sautján olíuskip. Úkraínuher hafi síðustu daga gert miklar árásir á rússnesk skip á Asovshafi og Rússar hafi því þurft að takmarka umferð sína um siglingarleiðina. Í umfjöllun Reuters segir að Úkraínuher sé í sterkri stöðu miðað við síðustu ár í baráttu sinni við innrás Rússa í landið en herinn standi þó frammi fyrir áskorunum hvað varðar loftvarnir og mannafla. Mikil ólga sé innan úkraínskra stjórnvalda nú um stundir en í gær var greint frá því að Yulia Svyrydenko hefði sagt forsætisráðherraembætti sínu lausu eftir að Vólodimír Selenskí Úkraínuforseti tilkynnti að hann hygðist gera breytingar á ríkisstjórn landsins sem leiddu til afsagnar ríkisstjórnarinnar. Serhiy Koretskyi, forstjóri ríkisorkufyrirtækisins Nftogaz, er talinn líklegur arftaki Svyrydenko og búist er við að þingið greiði atkvæði um skipunina á fimmtudag.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira