Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Valur Páll Eiríksson skrifar 21. júlí 2026 13:31 Sölvi Geir Ottesen er temmilega bjartsýnn fyrir kvöldið. Vísir/Pawel Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, er temmilega bjartsýnn fyrir leik liðsins við Hapoel Beer Sheva frá Ísrael í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í Víkinni í kvöld. Búast megi við opnum og skemmtilegum leik.
Hapoel er ísraelskur meistari og býsna sterkt lið, jafnvel sterkara en ungversku meistararnir sem Víkingur sló út í síðustu umferð. Klippa: Sölvi Geir ræðir ísraelsku gestina „Þetta er alvöru verkefni og frábært fótboltalið, skemmtilegt lið myndi ég segja. Þeir eru mjög aggressívir og djarfir í sinni pressu og spila boltanum vel á milli sín. Ég býst bara við skemmtilegum leik,“ segir Sölvi Geir. Víkingar geta mættir hnarreistir til leiks eftir sigurinn í síðasta verkefni og hafa þá sett óvænt tap gegn Þór í Bestu deildinni um helgina til hliðar. „Það er svona kannski eitt það jákvæða við svona þétt prógram að þú hefur engan tíma til að svekkja þig. Það var kannski aðeins eftir leik og í fluginu á leið heim. En síðan þarf maður bara að fara að spá í næsta leik, undirbúa hann. Það er bara áfram gakk.“ Æfing gærdagsins var sérlega löng þar sem farið var yfir taktísk atriði fyrir leik dagsins. „Það er alveg nóg að fara yfir og við erum með langan vídjófund þar sem við reynum að fara yfir eins mikið efni og við getum. Það er stutt á milli leikja og þétt prógram. Strákarnir þurftu að vera þolinmóðir að fara yfir taktíska hlutann og ég veit að þetta er ekki skemmtilegasti hlutinn af fótboltanum sem leikmaður,“ „En þetta er mikilvægt og þeir kvörtuðu ekkert, þrátt fyrir smá rok og rigningu. Þeir eru einbeitt og vilja fá upplýsingar fyrir svona mikilvæga leiki,“ segir Sölvi Geir. Fleira kemur fram í viðtalinu við Sölva sem má sjá í heild í spilaranum. Leikur Víkings og Hapoel hefst klukkan 19:00 í kvöld og er sýndur beint á Sýn Sport Ísland.
Víkingur Reykjavík Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Hagræddi sannleikanum um heilsu Mortensen fyrir leik“ Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira