Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júlí 2026 17:31 Lionel Messi var niðurbrotinn eftir úrslitaleik HM en það var væntanlega hans síðasti landsleikur á ferlinum. Getty/Hector Vivas Hógværð og lítillæti hafa alltaf verið stór hluti af vinsældum þess sem margir telja vera besta fótboltamann sögunnar.
Lionel Messi sást gráta eftir tapið í úrslitaleik heimsmeistaramótsins, væntanlega síðasta landsleik hans fyrir Argentínu. Messi gerði ekki mikið í úrslitaleiknum þar sem argentínska liðið virkaði bensínlaust og upptekið við annað en að spila fótbolta. Mikill munur á þessu kvöldi og því fyrir tæpum fjórum árum þegar Messi fagnaði langþráðum heimsmeistaratitli. Argentínska liðið hafði unnið hvern endurkomusigurinn á fætur öðrum á mótinu og Messi hafði komið með beinum hætti að tólf mörkum í fyrstu sjö leikjum liðsins. Að þessu sinni sást ekki mikið til hins 39 ára gamla Messi þegar hann var fyrsti leikmaður sögunnar til að byrja þrjá úrslitaleiki á HM. Eftir leikinn setti hann inn tilfinningaþrungna færslu á samfélagsmiðla með mynd af sér einum. Ólíkt því þegar argentínska liðið hafði unnið sína leiki á mótinu en þá birti Messi ávallt myndir af öllu liðinu. Netverjar tóku eftir þessu og hafa verið að mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki. Hann hrósar liðsfélögunum á sigurstundum en tekur sjálfur ábyrgðina þegar hlutirnir ganga ekki upp. Það var svo eftir 207. landsleikinn fyrir Argentínu og 34. leikinn í úrslitakeppni HM. Í þessum leikjum hefur hann skilað 125 mörkum og 68 stoðsendingum, þar af 21 marki og tólf stoðsendingum á HM. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible)
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Sjá meira