Innlent

Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg

Tómas Arnar Þorláksson og Jón Þór Stefánsson skrifa
Mynd frá vettvangi.
Mynd frá vettvangi. Aðsend

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um hádegisleytið í dag vegna elds sem kom upp í sumarbústað við Suðurlandsveg, rétt fyrir ofan Gunnarshólma.

Einn var fluttur á bráðamóttökuna. Grunur er um að sá sé með reykeitrun.

Þetta staðfestir Guðmundur Hreinsson, aðalvarðstjóri hjá slökkviliðinu í samtali við fréttastofu. 

Hann segir að slökkvistarfi sé að ljúka. Unnið var að því að slökkva á eldinum í húsinu sjálfu, og gróður í kring.

Þrír slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang þar sem er þó nokkur viðbúnaður. Þá var einn tankbíll sendur á vettvang, vegna þess að aðgengi að vatni fyrir slökkviliðið er lítið á vettvangi.


Ert þú á staðnum? Við tökum á móti frásögnum, myndum og myndskeiðum á ritstjorn@visir.is


Lögreglu barst tilkynning um málið rétt eftir að klukkan sló tólf um hádegi í dag. Tilkynningin var um alelda bústað.

Guðmundi grunar að húsið sé mikið skemmt.

Ekki er vitað um eldsupptök að svo stöddu.

Fréttin hefur verið uppfærð með frekari upplýsingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×