Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Jón Þór Stefánsson skrifar 27. júlí 2026 19:31 Christopher Nolan leikstýrir myndinni sem er milli tannanna á fólki. EPA Þýðandinn sem ber ábyrgð á líklega þekktustu nútíma þýðingu Ódysseifskviðu, úr forngrísku yfir á ensku, gefur lítið fyrir kvikmyndaaðlögun Christophers Nolan sem nú er í kvikmyndahúsum.
Emily Wilson, fornfræðingur og þýðandinn sem um ræðir, vill meina að Ódysseifskviða Nolans hafi ekkert sannfærandi að segja og vanti sálræna, tilfinningalega, pólitíska, og siðfræðilega dýpt. Þess má geta að Nolan sagðist hafa stuðst við hennar þýðingu þegar hann aðlagaði verkið að stóra skjánum. „En ég myndi skammast mín hefði ég skrifað einn einasta hluta þessa handrits,“ segir hún í gagnrýni sinni, sem birtist í London Review of Books. „Handritsskrifin eru ömurleg. Enginn sögupersóna er með sannfærandi mótíf fyrir gjörðum sínum eða orðum. Það eru engar kynlífssenur og allur maturinn lítur hræðilega út.“ Magnús Jochum birti gagnrýni sína um Ódysseifskviðu á Vísi í vikunni. Wilson sagðist hafa vonast að Nolan myndi ná hátindi ferils síns með því að leggja í Hómer. Í staðinn hafi myndin verið yfirborðskennd, uppfull af hálfkláruðum stórum hugmyndum. Það sem myndinni takist vel sé að sýna stórar sprengingarnar og stóra risa. „Í Ódýsseifskviðu Nolans vantar margt sem gerir söguljóðið frábært. Myndin hefur ekkert sannfærandi að segja um tíma, minningar, sögu, stríð, eða um sambandið milli glæstrar heimkomu stríðsmannsins og lífs fjölskyldu hans, andstæðinga, bandamanna, vina og nágranna.“ Þess má geta að Wilson er ekki að öllu leyti neikvæð í garð myndarinnar. Hún segir jákvætt að fólk flykkist í bíó, frekar en að sitja heima með augun á streymisveitunum. Þá, á öld þar sem hugvísindi og bókmenntir eiga undir högg að sækja, séu bókabúðir nú að selja mörg eintök af Ódysseifskviðu. „Kannski mun myndin sannfæra nokkra skólastjórnendur um að skera ekki niður hjá bókmennta-, tungumála- og sögudeildum sínum.“
Bíó og sjónvarp Bókmenntir Hollywood Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sahara Ray látin Lífið Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Costanza á klakanum Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira