Fá rúmlega fimm milljarða króna fyrir að samþykkja áform Infantinos Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. júlí 2026 12:34 Náið samband Donalds Trump og Giannis Infantino hefur víða verið gagnrýnt. epa/SHAWN THEW Aðildarríki FIFA hafa frest til 19. september til að samþykkja umdeildar áætlanir Giannis Infantino, forseta Alþjóða knattspyrnusambandsins. Þau aðildarríki sem leggja blessun sína yfir áætlanirnar fá fjörutíu milljónir Bandaríkjadala í sinn hlut.
FIFA ætlar sér að setja á laggirnar tuttugu milljarða Bandaríkjadala félag, FIFA Forward Enterprise, til að halda utan um keppnir á vegum sambandsins. Utanaðkomandi fjárfestum býðst að kaupa tuttugu prósenta hlut í félaginu. Bróðir tengdasonar Donalds Trump Bandaríkjaforseta, Jareds Kushner, þykir líklegur til að leiða fjárfestingahóp FFE. Þessar fyrirætlanir Infantinos hafa verið harðlega gagnrýndar, meðal annars af knattspyrnusamböndum Evrópu, Suður-Ameríku og Norður- og Mið-Ameríku. Sky Sports greinir frá því að bréf hafi borist öllum 211 aðildarríkjum FIFA þar sem þeim er gefinn frestur til 19. september næstkomandi til að samþykkja áformin umdeildu. Aðildarríkin sem samþykkja fá fjörutíu milljónir Bandaríkjadala fyrir að segja já, eða rúmlega fimm milljarða íslenskra króna. Þau aðildarríki FIFA sem hafna plönun Infantinos fá hins vegar aðeins tíu milljónir Bandaríkjadala í sinn hlut, eða 1,25 milljarða íslenskra króna. Infantino segir að til að FFE verði að veruleika þurfi stuðning framkvæmdastjórnar FIFA og meira en helmings aðildarríkjanna. Infantino vill fjölga liðum á HM úr 48 í 64 og ef að stofnun FFE verður er hætt við að HM verði haldið oftar.epa/WILL OLIVER Í bréfinu til aðildarríkjanna talar Infantino um að FFE muni fela í sér mikil tækifæri. „Þetta er einstakt og sérstakt fjármögnunartækifæri aðeins fyrir þau aðildarríki sem vilja taka þátt. Ákvörðun þeirra þarf að liggja fyrir 19. september 2026 svo við getum skipulagt fram í tímann og með fjármunum sem verða tiltækir strax frá og með 1. janúar 2027,“ segir í bréfinu en að sögn Infantinos mun FFE „einbeita sér að einu markmiði; að skapa eins mikið virði og mögulegt er fyrir aðildarríki FIFA.“ UEFA, Knattspyrnusamband Evrópu, hefur boðað til neyðarfundar á morgun þar sem rætt verður um næstu skref. UEFA hefur meðal annars hótað því að evrópsk lið muni sniðganga HM í mótmælaskyni ef plön Infantinos verða að veruleika. Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, fer á neyðarfund UEFA á morgun. Í svari við skriflegri fyrirspurn Vísis segir hann of litlar upplýsingar liggja fyrir til að sambandið taki afstöðu til fyrirætlana Infantinos. „Akkúrat núna liggja ekki fyrir nægar upplýsingar um útfærslu á hugmynd FIFA og því of snemmt að segja til um nokkra afstöðu. FIFA mun væntanlega kynna málið vel fyrir samböndunum, því eins og hefur komið fram er framkvæmdin og útfærslan háð samþykki aðildarlanda FIFA,“ segir Þorvaldur í svari sínu til Vísis. Í yfirlýsingu UEFA í gær segir að ekkert gagnsæi fylgi því hverjir hagnist á sölu innviða FIFA. Erlendir miðlar greina þó frá því að Infantino muni sjálfur græða vel á viðskiptunum.
FIFA Tengdar fréttir Blatter gagnrýnir áætlanir FIFA: „Mjög skaðlegt fyrir fótboltann“ Sepp Blatter, fyrrverandi forseti FIFA, hefur bæst í hóp þeirra fjölmörgu sem hafa gagnrýnt þær áætlanir að hleypa fjárfestum að innviðum sambandsins eins og HM í fótbolta. Blatter tengir líka fjárfestaleit FIFA við samband Gianni Infantino og Donald Trump. 29. júlí 2026 09:02 Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Enski boltinn hefst í kvöld Sjá meira
Blatter gagnrýnir áætlanir FIFA: „Mjög skaðlegt fyrir fótboltann“ Sepp Blatter, fyrrverandi forseti FIFA, hefur bæst í hóp þeirra fjölmörgu sem hafa gagnrýnt þær áætlanir að hleypa fjárfestum að innviðum sambandsins eins og HM í fótbolta. Blatter tengir líka fjárfestaleit FIFA við samband Gianni Infantino og Donald Trump. 29. júlí 2026 09:02