Hallgrímur segir stöðuna erfiða: „Þetta er þungt núna“ Árni Gísli Magnússon skrifar 9. ágúst 2026 22:19 Hallgrímur Jónasson og hans menn eru í brekku. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson KA beið lægri hlut gegn FH á heimavelli, og er nú komið í fallsæti Bestu deildarinnar þegar átján umferðum er lokið.Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, telur frammistöðuna hafa verið fína í leiknum en liðið þurfi að vinna í sínum málum til að fara vinna leiki þar sem staðan sé erfið.
Hvernig horfir þú á þessa frammistöðu í dag? „Mér fannst frammistaðan fín. Því miður þá bara skorum við ekki mark. Fáum hérna gott færi í fyrri hálfleik þegar Grímsi (Hallgrímur Mar Steingrímsson) held ég dettur fyrir framan markið þegar hann er einn og Jakob Héðinn (Róbertsson) kemst einn í gegn þar sem að markmaðurinn þeirra ver og Adam (Ægir Pálsson) fær fínt færi sem hann skýtur yfir og við fáum skallafæri en bara því miður skorum við ekki mark og aftur þá gefum við frekar ódýrt mark. Við vorum undirbúnir undir þetta, þeir fara oft með þrjá menn á nærsvæðið og sterkir þar.“ „Vorum búnir að vera flottir, síðan erum við búnir að gera breytingar og öflugir menn hjá okkur farnir út af sem eru öflugir í návígum og því miður þá skoruðu þeir bara akkúrat eins og við vorum búnir að sjá þá vera sterkir á nærsvæðinu. Við erum bara því miður að gefa of auðveld mörk, bæði á móti Keflavík og hér í dag og náum ekki að skora þannig þannig sé ég leikinn.“ Hallgrímur segir stöðuna erfiða og liðið verði að fara vinna leiki. „Mér fannst frammistaðan bara fín í báðum hálfleikum, þetta er mjög jafn leikur ef þú skoðar tölfræðina. Eins og staðan er núna þá endar þetta alltof oft með því að við töpum með einu marki og það breytist ekki að við vinnum leiki nema við skorum mark og við þurfum bara að vinna í okkar málum, þetta er þungt núna, búið að vera bara erfitt og við verðum sárir og leiðir í dag og svo er nýr dagur á morgun og svo förum við bara að einbeita okkur að Val því þetta er ennþá mjög jafnt. Það að lið séu tveimur stigum fyrir ofan okkur er ekki mesta vesenið, heldur að við þurfum að fara vinna fótboltaleiki.“ Eftir leikinn í dag hefur KA sætaskipti við FH og situr í ellefta sæti deildarinnar sem er fallsæti. Það er því sérstaklega dýrt að tapa á móti liði sem er einnig í fallbaráttu. „Það er bara þannig, á sama tíma erum við með fjögur stig á móti Þór sem er í þessari baráttu, við unnum FH úti þannig við erum ekki búnir að vera lélegri en þau í innbyrðisviðureignunum en hins vegar þá höfum við ekki unnið liðin í efri helmingnum og það er rétt. Í dag er vont að tapa fyrir FH, það er klárt mál.“ „Ég horfi bara á þetta þannig að þetta er pakki, þetta verður erfitt, og við þurfum að finna leið til að finna fótboltaleiki. Við erum með fullt af fínum fótboltamönnum sem eru að spila og ég er að gera hérna breytingar og menn sem að hafa og eiga að geta skorað og skapað mörk en því miður er það ekki að ganga og það er það sem við ætlum að vinna í“, sagði Hallgrímur að lokum.
Besta deild karla KA FH Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Enski boltinn Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira