„Höfum trú á að við getum farið inn í alla leiki til þess að vinna“ Árni Gísli Magnússon skrifar 9. ágúst 2026 23:00 Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH Vísir/Hulda Margrét Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var ánægður með 1-0 útisigur gegn KA í botnbaráttuslag Bestu deildarinnar. „
Þetta var bara hörku frammistaða. Við vissum alveg að þessi leikur í dag yrði ekki auðveldur, við ætluðum að koma og sækja þessi þrjú stig. Við vissum alveg að KA menn myndu ekkert gefa okkur þau, þeir eru í hörku baráttu náttúrulega í neðri hlutanum og vissum þetta yrði krefjandi. Leikurinn í dag var að mörgu leyti kannski fyrri hálfleikurinn svolítið fram og til baka, við ætluðum okkur kannski að ná meiri tökum á leiknum í fyrri hálfleik en sama skapi þó við vorum að fá á okkur opnanir og annað þá vorum við ansi agressívir í að verja markið okkar og það var bara virkilega gaman að fylgjast með strákunum, hversu eiginlega þeir eru farnir að njóta þess að verjast saman sem lið og með Jökul (Andrésson) í markinu og smitar orku og vilja í gegnum allt liðið og það er alvöru karakter í því.“ FH virtist líða ágætlega í stöðunni 1-0 þrátt fyrir að forystan væri aðeins eitt mark. „Já já algjörlega. Auðvitað voru KA mennirnir farnir að taka svolítið af sénsum og setja fleiri menn fram og sparka mikið í átt að teignum okkur en við vorum að reyna pressa það og loka á að þeir kæmu boltanum ekki inn á hættusvæðið en það er ekki möguleiki að halda þeim alveg frá teignum eins og staðan var og markmaðurinn þeirra var að sparka líka löngum boltum fram en það var ekkert panik og ekkert stress og Jökull náttúrulega gerir virkilega vel og ver fyrir okkur markið en að sama skapi bara allir sem tóku þátt í þessum leik, alvöru grimmd í þeim og vinnusemi og vilji en við skoruðum náttúrulega 2-0. Ég veit ekki alveg hvort að Kjartan Kári (Halldórsson) hafi verið rangstæður á því augnabliki en hefði náttúrulega klárað leikinn fyrir okkur. Við fengum alveg tækifæri hérna undir lokin til að setja 2-0 sem hefði klárað þetta en alvöru karakter í strákunum að sigla þessu heim svona 1-0.“ Botnbaráttan galopin FH fer upp úr fallsæti og sendir KA þangað í staðinn. FH situr nú í tíunda sæti en stutt er á milli liða í botnbaráttunni. „Auðvitað kíkir maður alveg á töfluna og fylgist með henni og allt það en það sem við erum búnir og ákváðum að gera náttúrulega og búnir að gera núna í langan tíma er að einbeita okkur að því sem við getum haft áhrif á og það eru þessir leikir sem við erum að fara inn í. Það er alveg sama hvaða leikur það er, við erum og höfum trú á að við getum farið inn í alla leiki til þess að vinna þá og komum hingað til þess að vinna og gerðum það.“ „Við erum að verja markið okkar vel, við erum að fá öfluga sóknarmenn inn í liðið, við erum búnir að vera styrkja okkur í glugganum þannig í næsta leik er bara sama uppi á teningnum. Við setjum upp leikplan til að vinna næsta leik og það er bara það sem skiptir okkur mestu máli að sækja þessi stig sem eru í boði fyrir okkur og vera ekki og mikið að spá í því sem er í gangi í kringum okkur því við getum ekki haft neina stjórn á því. Góðar styrkingar Erlingur Agnarsson gekk til liðs við FH á dögunum á láni frá Víkingi og spilaði sinn fyrsta leik þegar hann kom inn á í síðari hálfleik. Þá var Kjartan Kári orðaður frá FH og talið að hann myndi semja við Víking sem raungerðist ekki.Jóhannes fór stuttlega yfir leikmannamál liðsins. „Það er eins og ég sagði við þessari spurningu um daginn; Kjartan Kári er bara leikmaður FH þangað til annað breytist og það er bara ekki í mínum höndum en Kjartan Kári var frábær hérna í dag og lagði upp mark og hefði getað skorað mark sem kannski hefði átt að standa. Erlingur kemur vel inn í þetta, Guðmundur Andri (Tryggvason) er að ná fullum fitness og frábær viðbót í hópinn og Jói (Jóhannes Kristinn Bjarnason) og Oliver (Stefánsson) þetta hafa verið góðar styrkingar hjá okkur, ekki bara því þetta eru góðir fótboltamenn sem þeir svo sannarlega eru allir en þetta eru öflugir karakterar og leiðtogar og passa vel inn í það sem við erum að gera og gera bara hópinn og heildina sterkari og öflugri og það var það sem við vorum að leita að og bara gaman að sjá það.“
FH KA Besta deild karla Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira