Viðskipti erlent

Methagnaður norska olíusjóðsins

Kjartan Kjartansson skrifar
Nicolai Tangen, sjóðsstjóri norska olíusjóðsins.
Nicolai Tangen, sjóðsstjóri norska olíusjóðsins. Vísir/EPA

Norski olíusjóðurinn hagnaðist um 1.753 milljarða norskra króna, jafnvirði tæpra 22.800 milljarða íslenskra króna, á fyrri helmingi ársins. Hagnaður hans hefur aldrei verið meiri á sex mánaða tímabili.

Eignastýring norska seðlabankans, sem stýrir olíusjóðnum, segir að góð afkoma á fyrri hluta ársins skýrist af velgengni á hlutabréfamörkuðum, sérstaklega vegna hluta í asískum tæknifyrirtækjum.

Sjóðurinn var metinn á 22.683 milljarða norskra króna eftir fyrstu sex mánuði ársins, jafnvirði tæplega 295.000 milljarða íslenskra króna, að því er segir í frétt norska ríkisútvarpsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×