Depay ósáttur við að fá ekki framlengdan samning Andri Broddason skrifar 12. ágúst 2026 11:30 Memphis Depay varð deildarmeistari á sínu fyrsta tímabili í Brasilíu. EPA-EFE/ISAAC FONTANA Samningur Memphis Depay við Corinthias í Brasilíu er runninn út og verður ekki framlengt við hollenska framherjann. Hann hefur ásakað brasilíska félagið um „óásættanlega hegðun“.
Memphis Depay gekk til liðs við Corinthias í Brasilíu árið 2024 og skrifaði þar undir tveggja ára samning. Samkvæmt Depay dró félagið framlengdan samning til baka og skrifaði hann náið um málið á samfélagsmiðlinum X. „Forseti félagsins, íþrótta- og fjármáladeild félagsins voru búin að samþykkja framlengdan samning. Einhverjir hafa þó ákveðið að hætta við þetta samkomulag.“ Depay hefur viljað sýna Corinthias virðingu en hann getur ekki staðið þögull hjá eftir þetta atvik. „Ég er neyddur til að bregðast sterklega við til að gæta minna hagsmuna. Á næstu dögum mun ég tala við almenning en ég mun ekki láta þessa óásættanlegu hegðun vera.“ Very disappointed to read that Corinthians decided not to honour our agreement in place to extend my contract for 2 more years. This renewal was explicitly agreed upon by the president as well as the sporting, legal and financial department. Some people decided however to breach…— Memphis Depay (@Memphis) August 12, 2026 Memphis Depay hefur verið lykilmaður fyrir brasilíska félagið síðan hann gekk til liðs við það. Hann spilaði 79 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 20 mörk. Liðið vann brasilísku bikarkeppnina og brasilísku deildina árið 2025 þar sem Depay spilaði stórt hlutverk. Corinthias svarar færslu Depay með því að viðurkenna að félagið eigi ekki efni á að skrifa undir nýjan samning við Depay. „Stjórn félagsins vann dögum saman til þess að gera framlengda dvöl leikmannsins mögulega en eftir mikla ígrundun og eingöngu vegna fjárhagsvandræða var sett meiri áhersla á að reka félagið.“ Memphis Depay er markahæsti leikmaður hollenska landsliðsins frá upphafi og hefur leikið með stórliðum á borð við Barcelona og Manchester United.
Fótbolti Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn „Margt sem við þurfum að laga“ Körfubolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Körfubolti KA-menn brotlentu í Garðabæ Handbolti Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Körfubolti Fleiri fréttir Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Sjá meira